Sjáðu Semenyo setja pressu á Arsenal og markasúpu Liverpool Það voru fjörugir leikir í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær en deginum lauk á 1-0 sigri Manchester City gegn Leeds sem þar með setti mikla pressu á Arsenal fyrir stórleik dagsins við Chelsea. Enski boltinn 1.3.2026 09:33
Aldrei spurning á Anfield Liverpool vann 5-2 sigur á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Anfield. Liðið vinnur þar með þriðja sigurinn í deildinni í röð. Enski boltinn 28.2.2026 14:32
Liverpool borgar hæstu launin í ensku úrvalsdeildinni Englandsmeistarar Liverpool skiluðu aftur hagnaði eftir tímabilið sem liðið vann ensku úrvalsdeildina, með 15,2 milljóna punda afgangi fyrir skatt, 2,5 milljörðum króna, en um leið var launakostnaður liðsins sá hæsti í deildinni. Enski boltinn 28.2.2026 09:32
Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Marc Kosicke, umboðsmaður þýska knattspyrnustjórans Jurgen Klopp, segir að bæði Manchester United og Chelsea hafi bæði spurst fyrir um áhuga Þjóðverjans að gerast knattspyrnustjóri sinna liða þrátt fyrir að hann hafi ekki sagst ætla taka við öðru liði á Englandi eftir að hafa farið frá Liverpool. Enski boltinn 16. febrúar 2026 19:21
Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, hefur sagt að liðsfélagi hans hjá Liverpool, Milos Kerkez, sé að taka „miklum framförum“ eftir erfiða byrjun á ferli sínum á Anfield. Enski boltinn 16. febrúar 2026 14:00
Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Liverpool vann afar öruggan og þægilegan 3-0 sigur gegn Brighton í kvöld og kom sér þannig áfram í 5. umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta. Enski boltinn 14. febrúar 2026 19:32
Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Manchester City, Aston Villa og Liverpool fögnuðu öll sigri í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Burnley vann líka ótrúlegan endurkomusigur þar sem fimm mörk voru skoruð í fyrri hálfleiknum. Enski boltinn 12. febrúar 2026 08:48
Finnst ólukkan elta Liverpool Arne Slot knattspyrnustjóri Liverpool segir að óheppni Liverpool á þessu tímabili sé svo mikil að hún hafi jafnvel náð til nýja leikmannsins Jérémy Jacquet, sem hefur meiðst á öxl áður en hann gengur til liðs við Anfield í sumar. Enski boltinn 11. febrúar 2026 07:32
Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sérfræðingarnir í Sunnudagsmessunni voru sammála um að markið sem Rayan Cherki skoraði í lok uppbótartíma, fyrir Manchester City gegn Liverpool, hefði átt að fá að standa. Reglurnar styðji þó ákvörðun dómarans. Enski boltinn 9. febrúar 2026 09:00
Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin Það vantaði ekki spennuna og dramatíkina í slag Liverpool og Manchester City í gær. Mörkin og ekki síður markið umdeilda sem ekki fékk að standa má nú sjá á Vísi. Enski boltinn 9. febrúar 2026 07:31
Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega Franski fótboltamaðurinn Jérémy Jacquet meiddist illa í fyrsta leiknum sínum eftir að hann samdi við enska stórliðið Liverpool. Jacquet kemur ekki til Liverpool fyrr en í sumar en hjálpar franska liðinu Rennes ekki mikið á næstunni. Enski boltinn 8. febrúar 2026 23:00
„Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, var svekktur eftir 2-1 tap á heimavelli á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hans komst yfir þegar sextán mínútur voru til leiksloka en fékk svo á sig tvö mörk í uppbótartíma. Enski boltinn 8. febrúar 2026 19:27
„Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Bernardo Silva, leikmaður Manchester City, skoraði mikilvægt jöfnunarmark í endurkomusigrinum á Liverpool á Anfield í kvöld. Enski boltinn 8. febrúar 2026 18:59
Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Erling Braut Haaland hafði aldrei skorað fyrir Manchester City á móti Liverpool á Anfield en það breyttist í kvöld þegar hann tryggði City 2-1 endurkomusigur á Liverpool í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 8. febrúar 2026 18:34
Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Stórleikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og einn af þeim stóru á tímabilinu fer fram í dag þegar Liverpool fær Manchester City í heimsókn á Anfield. Þessi félög hafa unnið átta síðustu titlana í deildinni en að þessu sinni eru bæði lið í óvenjulegri stöðu. Enski boltinn 8. febrúar 2026 07:02
Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, hefur varað við því að skoðanir sérfræðinga og viðbrögð á samfélagsmiðlum geti haft áhrif á andlega heilsu yngri leikmanna. Hann hefur miklu meiri áhyggjur af næstu kynslóð frekar en sinni kynslóð. Enski boltinn 6. febrúar 2026 14:32
Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Arne Slot hefur mikla trú á varnarmanninum Jérémy Jacquet en franski miðvörðurinn gengur til liðs við Englandsmeistarana í sumar. Enski boltinn 6. febrúar 2026 09:47
Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Franski varnarmaðurinn Jérémy Jacquet verður ekki leikmaður Liverpool fyrr en í júlí. Liverpool og Rennes höfðu að sögn fjölmargar ástæður til að samþykkja sextíu milljóna punda samning en seinka komu hans um hálft ár. Sú helsta var vilji enska úrvalsdeildarliðsins til að forðast að brjóta fjármálareglur. Enski boltinn 5. febrúar 2026 09:02
Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Harvey Elliott fór á lán til Aston Villa frá Liverpool í ágúst þegar hann var nýorðinn enskur meistari og hafði verið valinn leikmaður Evrópumóts U21 landsliða síðasta sumar. Fimm mánuðum síðar er hann að upplifa martröð sem hann hefur litla sem enga stjórn á sjálfur. Enski boltinn 3. febrúar 2026 16:02
Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Dominik Szoboszlai, miðjumaður Liverpool og besti maður liðsins á tímabilinu, hefur viðurkennt að hann myndi gjarnan vilja framlengja dvöl sína hjá félaginu en sagði að ákvörðunin væri „ekki í hans höndum“. Enski boltinn 2. febrúar 2026 11:31
Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur samþykkt sextíu milljóna punda kaupverð fyrir varnarmanninn Jeremy Jacquet frá franska liðinu Rennes. Miðvörðurinn kostar meira en tíu milljarða íslenskra króna en mun þó ekki ganga til liðs við félagið í núverandi félagaskiptaglugga. Enski boltinn 2. febrúar 2026 07:23
Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekki vantaði sviptingarnar í leiki gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni. Alls voru sextán mörk skoruð í leikjunum fimm í gær. Enski boltinn 1. febrúar 2026 08:01
Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Eftir fimm deildarleiki í röð án sigurs vann Liverpool Newcastle United, 3-1, í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Tvö mörk frá Hugo Ekitike á jafn mörgum mínútum sneru leiknum Liverpool í vil. Enski boltinn 31. janúar 2026 22:00
Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu Liverpool var búið að vinna sig upp úr 2-0 holu á erfiðum útivelli en fékk á sig mark í uppbótartíma og tapaði 3-2 á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Liðið hafði ekki tapað síðan í nóvember en hefur enn ekki unnið deildarleik á árinu 2026. Enski boltinn 24. janúar 2026 20:03