Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Ríkjandi Íslandsmeistarinn í golfi, Dagbjartur Sigurbrandsson, er í afar góðum málum fyrir lokahring úrtökumóts á fyrsta stigi fyrir Evrópumótaröðina, DP World Tour. Golf 10.9.2026 16:31
Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær Júlíusson, kylfingur úr GKG náði þeim magnaða árangri að klára holu á albatross á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina, DP World Tour, í golfi. Golf 10.9.2026 10:05
Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Sem fyrr er nóg um að vera á sportrásum Sýnar. Í kvöld snýr Manchester United aftur í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 10.9.2026 06:00
Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Íslenska karlalandsliðið í flokki 50 ára og eldri gerði sér lítið fyrir og vann aðra deild Evrópumótsins í golfi. Með sigrinum mun íslenska liðið spila í efstu deild EM á næsta ári. Golf 4. september 2026 12:02
Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Yfir sjö þúsund kylfingar tóku þátt í Regluverðinum, leik Varðar og Golfsambands Íslands um golfreglur, í sumar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Verði. Viðskipti innlent 4. september 2026 10:30
Tiger missir bílprófið í fimm ár Það eru fimm mánuðir síðan Tiger Woods velti jeppanum sínum og var handtekinn fyrir að aka undir áhrifum. Sport 2. september 2026 12:32
Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Scottie Scheffler undirstrikaði stöðu sína sem besti kylfingur heims í dag þegar hann fagnaði sigri á lokamóti PGA-mótaraðarinnar. Sigri á mótinu fylgir hæsta verðlaunaféð á mótaröðinni eða 10 milljónir dollara, jafnvirði um 1,2 milljarða króna. Golf 30. ágúst 2026 22:17
Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golfáhrifavaldarnir Good Good munu ekki vera einn af styrktaraðilum móts á PGA mótaröðinni í golfi eftir að afar umdeild auglýsing á vegum þeirra og Callaway kylfuframleiðandans fór í loftið. Golf 28. ágúst 2026 09:31
Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Verslanir hafa tekið varning frá golfáhrifavöldunum í Good Good úr sölu vegna auglýsingar þar sem forsprakki hópsins sást hrinda konu í jörðina. Bæði forstjóri Good Good og Callaway-kylfuframleiðandans hafa beðist afsökunar á auglýsingunni. Golf 26. ágúst 2026 13:11
„Auðvitað var auka hjartsláttur“ Ríkjandi Íslandsmeistari í golfi síðustu tveggja ára, Dagbjartur Sigurbrandsson er stoltur af því að hafa tekist að verja titilinn stóra á heimavelli. Hann stefnir langt í íþróttinni og slær ekkert af á næstunni. Golf 22. ágúst 2026 09:31
Óliver heldur áfram að slá í gegn Eftir sigurinn magnaða á Opna breska áhugamannamótinu í golfi pilta, besta árangur íslensks kylfings í flokki 18 ára og yngri, var Óliver Elí Björnsson mættur á Jacques Léglise Trophy sem fram fer á Írlandi í dag og á morgun. Golf 21. ágúst 2026 18:04
Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Moskítóflugur herja á bestu kvenkylfinga heims í Edmonton í Kanada, á CPKCmótinu á LPGA-mótaröðinni í golfi. Golf 21. ágúst 2026 15:16
Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Scottie Scheffler og Rory McIlroy virðast ekki geta fagnað góðu gengi á sama tíma en eftir fyrsta dag BMW Championship-mótsins er McIlroy ásamt öðrum í efsta sæti á meðan Sheffler er í fjórða síðasta sæti. Golf 21. ágúst 2026 13:00
LIV-mótaröðin í uppnámi en Rory Mcllroy ekki spenntur að fá kylfinga þaðan Miklar vangaveltur eru um framtíð kylfinga á LIV-mótaröðinni í golfi eftir að síðasta móti tímabilsins var frestað. Kylfingar gera ráð fyrir því að mótaröðin verði lögð niður og skoðaðar lausnir á endurkomu kylfinga á PGA-mótaröðina. Golf 20. ágúst 2026 13:32
Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Eftir sigurinn magnaða á Opna breska áhugamannamótinu í golfi pilta, besta árangur íslensks kylfings í flokki 18 ára og yngri, flaug Óliver Elí Björnsson upp heimslista áhugakylfinga í dag. Golf 19. ágúst 2026 12:30
Golfmót FM957 Golfmót FM957 og Golfklúbbs Suðurnesja fór fram 14. ágúst á Hólmsvelli í Leiru. Keppt var um glæsilega vinninga frá samstarfsaðilum í glampandi sól og blíðu. Lífið samstarf 18. ágúst 2026 13:13
Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Óliver: „Mjög mikill heiður“ Óliver Elí Björnsson, sextán ára kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, gerði sér lítið fyrir og vann opna breska áhugamannamót pilta í golfi. Pilturinn hefur hlotið verðskuldaða athygli í kjölfarið og stefnir langt í íþróttinni. Hann mátti vart vera að því að taka upp úr ferðatöskunni þegar heim var komið því stórt mót með úrvalsliði Evrópu tekur nú við. Golf 18. ágúst 2026 10:00
Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Óliver Elí Björnsson mun leika á Jacques Légalise Trohpy-mótinu sem er ein stærsta liðakeppni í heiminum fyrir kylfinga yngri en 18 ára. Golf 17. ágúst 2026 22:00
McIlroy áhyggjufullur eftir erfiða reynslu Norður-Írski atvinnukylfingurinn Rory McIlroy er áhyggjufullur eftir að hafa endað í 66.sæti á móti á PGA-mótaröðinni þar sem að honum tókst ekki að skila hring á undir pari vallarins. Lítið hefur gengið hjá McIlroy upp á síðkastið. Golf 17. ágúst 2026 13:02
Óliver var með funheitan pútter Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili vann sögulegan íslenskan sigur og náði besta árangri íslensks kylfings í flokki átján ára og yngri frá upphafi þegar hann vann magnaðan sigur á Opna breska áhugamannamóti pilta í gær. Golf 16. ágúst 2026 17:31
Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Átján ára kínverskur undrakylfingur hefur verið á kortinu hjá harðkjarna golfáhugamönnum en nú eru mun fleiri farnir að heyra af þessari vonarstjörnu heimsgolfsins, ekki síst eftir frammistöðu hans um helgina. Golf 15. ágúst 2026 22:16
Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Óliver Elí Björnsson, landsliðskylfingur úr Golfklúbbnum Keili, vann í dag magnaðan sigur á Opna breska áhugamannamóti pilta þegar hann hafði betur gegn Svíanum Ludwig Libera í 37 holu úrslitaleik í Skotlandi. Golf 15. ágúst 2026 16:14
Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Íslenski kylfingurinn Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili er kominn í úrslit opna breska áhugamannamótsins í piltaflokki. Golf 14. ágúst 2026 19:42
Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Búist er við að LIV-mótaröðin hætti við lokakeppni liðakeppninnar á mótaröðinni. Ekki er víst hvað ákvörðunin þýði fyrir framtíð mótaraðarinnar. Golf 14. ágúst 2026 14:32