Palace tókst næstum að skemma bikargleði Liverpool Englandsmeistarar Liverpool fögnuðu titlinum formlega í dag þegar liðið tók á móti Crystal Palace í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Leikmenn Palace voru nálægt því að setja blett á bikargleðina en Mo Salah sá til þess að heimamenn kláruðu tímabilið ekki með tapi. Fótbolti 25. maí 2025 17:10
Garnacho ekki í hóp Alejandro Garnacho er ekki í leikmannahópi Manchester United sem tekur á móti Aston Villa í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Hann gæti verið á förum frá félaginu. Enski boltinn 25. maí 2025 14:00
Ætlar að biðja stuðningsmennina afsökunar eftir lokaleikinn Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, ætlar að biðja stuðningsmenn liðsins afsökunar eftir lokaleik þess í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 25. maí 2025 11:49
Ítalíumeistararnir að landa De Bruyne Þótt Kevin De Bruyne sé á förum frá Manchester City verður hann væntanlega áfram í ljósbláum búningi því flest bendir til þess að hann sé á förum til nýkrýndra Ítalíumeistara Napoli. Fótbolti 25. maí 2025 10:02
Bastarður ráðinn til starfa Fréttir af enska F-deildar liðinu Torquay United vekja alla jafna ekki mikla athygli í fjölmiðlum en frétt af ráðningu nýs tengiliðs stuðningsmanna við félagið fór heldur betur á flug á samfélagsmiðlum. Fótbolti 24. maí 2025 23:15
Gary Martin aftur í ensku deildina Enski markahrókurinn Gary Martin, sem lék hér á Íslandi um árabil, er mættur í enska boltann á ný en Martin lék síðast á Englandi 2009 með unglingaliði Middlesbrough. Stjóri aðalliðsins þá var enginn annar en Gareth Southgate. Fótbolti 24. maí 2025 21:27
Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Tom Watson skoraði sigurmark Sunderland gegn Sheffield United í uppbótartíma í úrslitaleik umspils um sæti í ensku úrvalsdeildinni á Wembley í dag. Enski boltinn 24. maí 2025 16:15
Salah bestur og Gravenberch besti ungi Mohamed Salah var valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar og samherji hans hjá Liverpool, Ryan Gravenberch, besti ungi leikmaðurinn. Enski boltinn 24. maí 2025 13:58
Matic reyndist sannspár með söluna á McTominay Nemanja Matic botnaði lítið í þeirri ákvörðun Manchester United að selja sinn gamla samherja, Scott McTominay, til Napoli í fyrra. Serbinn reyndist sannspár. Fótbolti 24. maí 2025 13:02
Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Gary Neville, sparkspekingur á Sky Sports, segir að Nottingham Forest hafi meinað sér að mæta á leik liðsins gegn Chelsea á City Ground í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn. Enski boltinn 24. maí 2025 11:00
Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Liam Delap virtist ákveðinn í að fara til Manchester United í sumar, það var áður en Rauðu djöflarnir töpuðu fyrir Tottenham Hotspur í úrslitum Evrópudeildar karla í knattspyrnu. Nú eru Chelsea og Newcastle United einnig í myndinni hjá þessum 22 ára gamla framherja. Enski boltinn 23. maí 2025 18:02
Klopp snýr aftur á Anfield Jurgen Klopp, fyrrverandi þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, verður á meðal áhorfenda á Anfield þegar að Liverpool tekur á móti Crystal Palace í lokaumferð deildarinnar á sunnudaginn. Enski boltinn 23. maí 2025 15:17
Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Starfsfólk hjá Manchester United kemst að því í dag hvort það haldi starfi sínu hjá félaginu eftir tap liðsins í úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrir Tottenham á miðvikudagskvöld. Félagið verður af miklum fjárhæðum vegna tapsins og ljóst að fjölda fólks verður sagt upp í dag. Enski boltinn 23. maí 2025 14:32
Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Brandon Williams hefur nú hlotið fjórtán mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir glæfraakstur sinn í ágúst 2023, þegar hann var leikmaður Manchester United. Enski boltinn 23. maí 2025 13:44
Var ekki nógu ánægður með Trent Arne Slot, þjálfari Englandsmeistara Liverpool, hefur greint frá því að hann hafi ekki verið nógu ánægður með framlag Trent Alexander Arnold á æfingum liðsins í upphafi tímabils. Trent er á leið til Real Madrid á frjálsri sölu eftir tímabilið. Enski boltinn 23. maí 2025 12:02
Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands í fótbolta, segist vilja sjá með berum augum hvernig Ivan Toney komi út í enska hópnum. Toney er nú valinn í fyrsta sinn síðan hann gekk í raðir sádi-arabíska liðsins Al-Ahli frá Brentford síðasta sumar. Enski boltinn 23. maí 2025 09:45
Starf Amorims öruggt Þrátt fyrir að Manchester United hafi átt afleitt tímabil er starf knattspyrnustjórans Rubens Amorim ekki í hættu. Enski boltinn 23. maí 2025 08:01
Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Leikmenn AFC Whyteleafe fögnuðu heldur óhefðbundnum meistaratitli í utandeild á Englandi þar sem liðið hafnaði í þriðja sæti. Enski boltinn 23. maí 2025 07:03
Hundruð milljóna í bónus en gæti þurft að finna sér nýja vinnu Þjálfari sem stýrir liði sínu til síns fyrsta titils í sautján ár, og síns fyrsta Evróputitils síðan árið 1984, ætti að geta gengið að því vísu að halda vinnunni sinni í það minnsta fram á næsta tímabil. Eða hvað? Fótbolti 22. maí 2025 23:17
Ósáttur með fáar mínútur í úrslitunum og íhugar framtíðina Alejandro Garnacho, leikmaður Manchester United, virðist vera heldur ósáttur við spilaðar mínútur í úrslitum Evrópudeildarinnar í gær og íhugar nú framtíð sína hjá félaginu. Fótbolti 22. maí 2025 20:30
Börsungar renna hýru auga til Rashford og Diaz Deco, yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona, segir að félagið hafi áhuga á því að fá Marcus Rashford eða Luis Diaz til félagsins. Fótbolti 22. maí 2025 19:46
Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Bruno Fernandes segir að hann muni yfirgefa Manchester United ef félagið vill græða pening á því að selja hann. Enski boltinn 22. maí 2025 09:01
Játar sök vegna smygls á 60 kílóum af kannabisi Jay Emmanuel-Thomas, fyrrum leikmaður Arsenal, hefur játað sök vegna tilraunar til að smygla um 60 kílóum af kannabisi til Englands. Fótbolti 21. maí 2025 15:15
Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Stuðningsmenn annarra liða en Manchester United og Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni vonast hvað flestir eftir sigri þeirra síðarnefndu í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Enski boltinn 21. maí 2025 13:02
Mikilvægasti leikur í sögu Man. Utd Þó að Manchester United sé eitt allra sigursælasta fótboltalið Evrópu frá upphafi þá má færa rök fyrir því að úrslitaleikurinn við Tottenham í Evrópudeildinni í kvöld sé mikilvægasti leikur liðsins frá upphafi. Að minnsta kosti fjárhagslega. Fótbolti 21. maí 2025 11:31
Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Everton hefur fordæmt netníð sem eiginkona Dominic Calvert-Lewin, framherja liðsins, varð fyrir. Enski boltinn 21. maí 2025 10:31
Guardiola hótar að hætta Pep Guardiola hótar að hætta sem knattspyrnustjóri Manchester City nema fækkað verði í leikmannahópi liðsins. Enski boltinn 21. maí 2025 07:30
„Manchester er heima“ Það var tilfinningaríkur Kevin De Bruyne sem reif í hljóðnemann og ræddi við stuðningsfólk Manchester City eftir það sem var hans síðasti heimaleikur fyrir félagið. Það verður ekki annað sagt en að þessi belgíski miðjumaður hafi sett svip sinn á ensku úrvalsdeildina sem og liðið sem hann vann fjölda titla með. Enski boltinn 20. maí 2025 22:32
Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi Árangur Nuno Espiríto Santo með Nottingham Forest hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. Roma er sagt vilja fá Portúgalann til að taka við gamla brýninu Claudio Ranieri sem sneri til baka og bjargaði sínu uppáhalds félagi eftir að hafa sagt skilið við þjálfun. Enski boltinn 20. maí 2025 19:02
De Bruyne kvaddur með stæl Belgíski miðjumaðurinn Kevin de Bruyne lék í kvöld sinn síðasta heimaleik fyrir Manchester City. Það var því við hæfi að liðið sýndi sínar bestu hliðar þó De Bruyne sjálfur hafi klikkað á algjöru dauðafæri. Enski boltinn 20. maí 2025 18:32