Danir gera eins og Svíar og hætta að tala um „Hvíta-Rússland“ Utanríkisráðuneyti Danmerkur hefur greint frá því að hætt verði að notast við nafnið Hvíta-Rússland, það er Hviderusland, og að framvegis verði notast við nafnið Belarus um landið. Er það gert eftir óskir frá stjórnarandstöðunni í landinu. Erlent 19. mars 2021 08:44
„Er ég áhyggjufullur? Já“ Árið fyrir danska landsliðsmarkvörðrinn og leikmann Kiel, Niklas Landin, hefur verið ansi viðburðarríkt eftir heimsmeistaramótið í Egyptalandi. Handbolti 18. mars 2021 07:02
Reyna að brjóta upp á fábreyttan hversdagsleikann Strangar sóttvarnaraðgerðir eru enn í gildi í Danmörku þótt nokkur skref hafi verið stigin til afléttingar. Íslendingar í Kaupmannahöfn sakna þess meðal annars hvað helst að komast á barinn, á veitingastaði og vona að landamæri verði opnuð sem fyrst. Innlent 17. mars 2021 22:03
Fjölskylda Freyju minnist hennar: „Þú munt ávallt lifa í hjörtum okkar“ „Glaðlynda Freyja okkar, sem vildi öllum allt það besta og hafði mikla samúð, var alltaf hjálpsöm og reyndi alltaf að hvetja fólkið í kring um sig. Hún var mikill tónlistarunnandi og naut þess að dansa við tónlist, hún elskaði liti og málaði fallegar myndir sem glöddu alla ástvini hennar.“ Innlent 15. mars 2021 19:37
Boða til mótmæla fyrir utan Parken því þeir fá ekki að vera á pöllunum Stuðningsmenn FCK hafa boðið til mótmæla fyrir utan Parken, heimavöll liðsins, fyrir stórleik FCK og Midtjylland sem fer fram á Parken í dönsku úrvalsdeildinni á morgun. Fótbolti 14. mars 2021 09:30
Danir hætta tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku hafa ákveðið að stöðva tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca gegn Covid-19 eftir tilkynningar um að grunur sé um alvarlegar aukaverkanir varðandi blóðtappa. Notkuninni verður hætt í tvær vikur til að byrja með. Innlent 11. mars 2021 09:58
Danir völdu framlag til Eurovision sem verður flutt á dönsku Dúettinn Fyr & Flamme mun flytja framlag Dana í Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, í vor. Dúettinn flutti lagið Øve os på hinanden í úrslitaþætti dönsku söngvakeppninnar Melodi Grand Prix í gærkvöldi sem stóð uppi sem sigurlag keppninnar en lagið hlaut 37% greiddra atkvæða. Lífið 7. mars 2021 13:52
Krotuðu hatursorð til nágrannanna á lest Það verður seint sagt að það sé mikil vinátta á milli Kaupmannahafnarliðanna FCK og Bröndby en liðin mætast einmitt í dönsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Fótbolti 3. mars 2021 23:01
Evrópuríki horfa annað í leit að bóluefni Danir og Austurríkismenn ætla að funda með Ísraelsstjórn á morgun um bóluefnissamstarf. Vaxandi óánægja er á meðal aðildarríkja Evrópusambandsins um hægagang í bóluefnismálum. Erlent 3. mars 2021 12:16
Herða takmarkanir í Svíþjóð og Noregi Norðmenn og Svíar kynntu hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar í dag. Erlent 24. febrúar 2021 19:30
Fá að mæta í skólann en skilyrði um skimun tvisvar í viku Sérfræðingar í Danmörku leggja til að leyft verði að opna ákveðnar verslanir og að afþreying utandyra fái að hefjast á nýjan leik þegar tilkynnt verður um næstu skref við afléttingu takmarkana vegna kórónuveirufaraldursins í Danmörku. Þá er lagt til að nemendur sem eiga að útskrifast í vor fái að mæta aftur í skólann aðra hvora viku. Aftur á móti á það aðeins við nemendur í ákveðnum landshlutum og er háð því að nemendur sýni reglulega fram á neikvætt covid-19 próf. Erlent 22. febrúar 2021 23:31
Segir Hansen ekki tapa fjárhagslega á skiptunum heim til Danmerkur Troels Troelsen, íþróttahagfræðingur, segir að Mikkel Hansen muni ekki fá verr greitt í Danmörku en hann gerir í Frakklandi. Þetta segir hann í löngu viðtali við BT um skiptin frá PSG til Álaborgar. Handbolti 21. febrúar 2021 10:00
Loka öllum skólum í Kolding og senda alla eldri en tólf ára í skimun Ríkisstjórn Danmerkur hefur fyrirskipað að loka skuli öllum skólum og stofnunum í bænum Kolding á Jótlandi eftir að mikill fjöldi fólks hefur greinst með kórónuveiruna síðustu daga. Erlent 19. febrúar 2021 14:56
Dæmdur fyrir að hósta á lögreglu og hrópa „kóróna“ Hæstiréttur í Danmörku hefur dæmt tvítugan karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa hóstað á tvo lögreglumenn og hrópað „kóróna“. Maðurinn er dæmdur fyrir brot gegn valdstjórninni, en sömuleiðis fyrir að hafa flúið frá lögreglustöð. Erlent 18. febrúar 2021 14:54
Fékk ekki að millilenda þrátt fyrir „gulltryggingu með tveimur mótefnamælingum“ Ísold Guðlaugsdóttir er búsett í Svíþjóð. Hún var búin að vera á Íslandi í um tvo mánuði en var snemma í gærmorgun mætt á Keflavíkurflugvöll þar sem hún átti flugmiða heim til Stokkhólms með millilendingu í Kaupmannahöfn. Hún fékk aftur á móti ekki að fara um borð í vélina til Kaupmannahafnar þar sem hvorugt skjalið sem hún var með í höndunum um að hún væri með mótefni gegn covid-19 var tekið gilt. Annað reyndist of gamalt og hitt of nýtt. Innlent 17. febrúar 2021 23:23
Umfangsmikil lögregluaðgerð við bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn Lögregluaðgerð stendur yfir við bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn þar sem eitthvað grunsamlegt mun vera á seiði. Lögreglan hefur lokað af Dag Hammerskjöld-götu á Austurbrú þar sem sendiráðið er staðsett. Búnaður sprengisveitar lögreglunnar mun meðal annars hafa verið notaður við aðgerðirnar. Erlent 17. febrúar 2021 17:53
Vinir Freyju í Danmörku safna fyrir börnin hennar Danskir vinir Freyju Egilsdóttur, sem var myrt í Malling á Jótlandi í lok janúar, hafa hafið söfnun til stuðnings börnum hennar. Í dag höfðu þegar safnast um 76 þúsund danskar krónur eða sem nemur um 1,6 milljónum íslenskra króna. Líkt og Vísir greindi frá fyrir helgi er einnig hafin söfnun hér á Íslandi fyrir börn og fjölskyldu Freyju. Erlent 14. febrúar 2021 19:17
Dönsk vindorkueyja mætir orkuþörf tíu milljóna heimila Danir fyrirhuga að safna vindorku með fjölmörgum vindorkubúum og miðla til annarra ríkja. Heimsmarkmiðin 10. febrúar 2021 13:42
Skipulagði flóttann í hálft annað ár Dómstóll í Danmörku dæmdi í morgun danska morðingjann og uppfinningamanninn Peter Madsen í 21 mánaða fangelsi fyrir tilraun sína til að flýja úr Herstedvester-fangelsinu vestur af Kaupmannahöfn í október í fyrra. Hann afplánar nú þegar lífstíðardóm fyrir kynferðisbrot og morðið á sænsku blaðakonunni Kim Wall. Erlent 9. febrúar 2021 13:26
Klúður Se og Hør: „Hér er tvöfaldur morðingi í afmæli á Íslandi árið 2017“ Slúðurtímaritið Se og Hør gerði alvarleg mistök í umfjöllun sinni um morðið á Freyju Egilsdóttur Mogensen. Blaðið birti mynd af manni, óskýra þó, og fullyrti að um væri að ræða morðingja Freyju. Dóttir mannsins staðfestir við Lokalavisen í Árósum að maðurinn á myndinni sé faðir hennar, alls ekki Flemming Mogensen, barnsfaðir og morðingi Freyju. Innlent 9. febrúar 2021 12:31
Safna fyrir börn og fjölskyldu Freyju Söfnun er hafin til styrktar fjölskyldu og börnum Freyju Egilsdóttur Mogensen sem var myrt í bænum Malling á Jótlandi í byrjun febrúar. Ung börn hennar tvö eru í öruggum höndum hjá fjölskyldumeðlimum í Danmörku að sögn dönsku lögreglunnar. Innlent 9. febrúar 2021 11:33
Aðkoma að sjónvarpsþáttum um leitina að Wall bjargaði foreldrum hennar Foreldrar blaðamannsins Kim Wall segja að aðkoma þeirra að sjónvarpsþáttaröð um morðið á dóttur þeirra hafi verið það eina sem kom í veg fyrir að þau féllu ofan í djúpan og dimman pytt. Erlent 7. febrúar 2021 22:09
Kannast ekki við að hafa fengið boð um aðstoð frá Íslandi Lögreglan á Austur-Jótlandi kannast ekki við að hafa fengið boð frá íslensku lögreglunni um aðstoð í tengslum við rannsóknina á morði Freyju Egilsdóttur Mogensen. Það sé þó ekki útilokað að óskað verði eftir aðstoð íslensku lögreglunnar á seinni stigum málsins. Erlent 6. febrúar 2021 17:20
„Kæra Freyja. Ég þekkti þig ekki. Bara örlög þín“ Freyja Egilsdóttir Mogensen var lífsglöð, hjálpsöm, brosmild og góð vinkona að sögn skólasystkina hennar og vina. Íbúar í Malling héldu minningarathöfn við kirkjuna í bænum í dag en frá því upp úr hádegi og fram eftir kvöldi var stöðugur straumur fólks sem lagði leið sína að kirkjunni. Erlent 5. febrúar 2021 22:55
Freyja hafi vitað af fyrri dómi sem maðurinn hlaut fyrir morð Boðað hefur verið til minningarathafnar í Malling á Austur-Jótlandi sídegis í dag, til minningar um Freyju Egilsdóttur Mogensen, sem var myrt í síðustu viku. Nákomin vinkona Freyju segir í samtali við Ekstra Bladet að Freyja hafi vitað að eiginmaður hennar, sem hún hafði slitið samvistum við, hafi áður hlotið dóm fyrir morð. Erlent 5. febrúar 2021 12:40
Árásarmaðurinn í Tønder reyndist Svíi Maður sem réðst á strætisvagnabílstjóra í Tønder á Suður-Jótlandi í Danmörku reyndist vera Svíi, en ekki Íslendingur líkt og fyrstu fréttir danskra fjölmiðla sögðu til um. Erlent 5. febrúar 2021 11:58
Handteknir fyrir að ráðast á strætóbílstjóra í Danmörku Lögregla í Danmörku hefur handtekið þrjá einstaklinga fyrir að hafa ráðist á strætóbílstjóra í Tønder á Suður-Jótlandi eftir að bílstjórinn hafði krafist þess að þeir notuðu grímu um borð og greiddu sömuleiðis fargjald. Erlent 5. febrúar 2021 09:47
Hefðu aldrei trúað að þetta gæti gerst í sínum litla heimabæ Rannsókn dönsku lögreglunnar á morðinu á Freyju Egilsdóttur miðar vel að sögn yfirmanns í lögreglunni. Börn Freyju séu komin í skjól. En í heimabæ Freyju og barnanna í Malling á Jótlandi, rétt um sautján kílómetrum suður af Árósum, ríkir sorg. Það er enda ekki eitthvað sem íbúar eru vanir, að svo hrottalegt morð sé framið í þeirra næsta nágrenni. Erlent 4. febrúar 2021 23:32
Segir börn Freyju í öruggum höndum hjá ættingjum Freyja Egilsdóttir og fyrrverandi sambýlismaður hennar, sem hefur játað á sig morðið, áttu saman tvö ung börn. Innlent 4. febrúar 2021 16:20
Morðingi Freyju stakk hina barnsmóður sína átján sinnum 51 árs karlmaður sem hefur játað að hafa banað Freyju Egilsdóttur Mogensen í bænum Malling í Árósum var árið 1996 dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir morðið á barnsmóður sinni. Þau höfðu þá skilið að skiptum. Erlent 4. febrúar 2021 16:08