Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Meirihluti kjörinna fulltrúa telur að bætt götuhreinsun muni stemma stigu við mikilli svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu, miðað við svör til fréttastofu um málið. Fulltrúarnir skiptast í tvo hópa, þá sem telja að þrifin skipti máli og svo þá sem benda á að nagladekk og samgöngur séu helsta vandamálið. Sumir kenna meirihlutanum í borgarstjórn um vandann en aðrir íhaldsmönnum sem dragi lappirnar að taka á nagladekkjavanda. Öll líta málið alvarlegum augum. Innlent 17.2.2026 15:40
Grásleppan hleypir upp störfum þingsins Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis hefur frestað þingfundi um tuttugu mínútur. Hún sagðist nú hafa hlýtt á rúmlega tuttugu ræður minnihlutans og sagði affarasælast að funda með þingflokksformönnum áður en lengra yrði haldið. Innlent 17.2.2026 14:55
Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Bæði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu vöruðu við nýju frumvarpi um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar um skýrslur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. Innlent 17.2.2026 10:29
„Framsókn styður ekki bókun 35“ Framsókn tekur afdráttarlausa afstöðu gegn bókun 35 og aðild að Evrópusambandinu samkvæmt nýrri stjórnmálaályktun sem flokksþing samþykkti í dag. Bókun 35 var lögð fram í tíð síðustu ríkisstjórnar, sem Framsóknarmenn voru aðilar að. Innlent 15. febrúar 2026 19:36
Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Stefán Vagn Stefánsson þingmaður var kjörinn varaformaður Framsóknarflokksins í dag og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir varaþingmaður var endurkjörin ritari flokksins. Þau voru hvort tveggja eitt í framboði. Innlent 15. febrúar 2026 18:33
„Eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum“ Lilja Alfreðsdóttir, nýr formaður, Framsóknarflokksins segist ætla að vinna náið með þingflokknum þrátt fyrir að eiga ekki sæti þar sjálf. Hún líkir því að vera knattspyrnuþjálfari. Þingflokksformaðurinn laut í lægra haldi í formannskjörinu. Innlent 15. febrúar 2026 17:11
Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Getur næsti formaður Framsóknarflokksins verið utan þings? Um þetta var deilt í Pallborðsþætti í dag þegar formannsefnin Lilja Dögg Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknar og Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknar mættust í kappræðum. Innlent 12. febrúar 2026 22:00
Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar. Innlent 12. febrúar 2026 16:50
Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Varhugavert, ríkisfjármálaleg tímasprengja, möguleg hagstjórnarmistök í uppsiglingu og sjálfvirk útgjaldaaukning sem stuðlað getur að ósjálfbærni ríkissjóðs. Þessi orð hafa meðal annars verið notuð til að lýsa einu helsta þrætueplinu á Alþingi undanfarnar vikur. Hér er þó ekki verið að vísa í orð stjórnarandstöðunnar, heldur sérfræðinga, meðal annars úr röðum akademíunnar, Fjármálaráðs og fjármálaráðuneytisins. Innlent 12. febrúar 2026 15:16
Baráttan um formannsembætti Framsóknar Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar um helgina. Tvær eru í framboði til formanns og berjast um að verða arftakar Sigurðar Inga Jóhannssonar núverandi formanns. Innlent 12. febrúar 2026 12:54
Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Þingmaður Sjálfstæðisflokksins kveðst hafa þungar áhyggjur af stöðu barnafjölskyldna í landinu og hefur lagt fram frumvörp til að létta undir með þeim. Hún vill afnema virðisaukaskatt á barnavörur og gefa foreldrum skattafrádrátt vegna tómstunda barna þeirra, svo fátt eitt sé nefnt. Innlent 11. febrúar 2026 11:38
„Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Þingflokksformaður Flokks fólksins segir málflutning Sjálfstæðismanna um breytingar á örorku- og ellilífeyrisbótum sorglegan. Breytingunum sé aðeins ætlað að stöðva kjaragliðnun sem hafi átt sér stað síðustu ár. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir aðferðarfræðina við breytingarnar galna. Innlent 10. febrúar 2026 22:02
„Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar lögðu til að þriðju umræðu um frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar yrði flýtt á Alþingi í dag. Með þessu sögðust þingmenn vilja „leggja fram hjálparhönd“ til dómsmálaráðherra til að unnt væri að afgreiða málið, en stjórnarþingmenn sökuðu stjórnarandstöðuna um að fara með leikþátt. Tillagan var felld með 29 atkvæðum þingmanna stjórnarflokkanna gegn 19 atkvæðum stjórnarandstöðunnar. Innlent 10. febrúar 2026 15:06
Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar um hversu mörg börn á Íslandi sækja ekki skóla, þrátt fyrir skólaskyldu í landinu. Ráðuneytið safnar ekki upplýsingum frá sveitarfélögum um skólasókn barna með kerfisbundnum hætti en miðlægum nemendagrunni verður ætlað að veita ráðuneytinu heildarsýn yfir stöðu mála og hægt verði að nýta gögn þaðan til að bæta gæði skólastarfs, þjónustu, stefnumótun og forgangsröðun stjórnvalda í skólamálum. Innlent 10. febrúar 2026 08:13
Stefnt að stjórnleysi í ríkisfjármálunum Það þarf ekki hagfræðimenntun til að átta sig á því að það er óskynsamlegt að lögfesta sjálfvirka aukningu ríkisútgjalda algjörlega óháð stöðu efnahagslífsins hverju sinni og getu ríkissjóðs til að standa undir útgjöldunum. Skoðun 7. febrúar 2026 08:33
Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Mennta- og barnamálaráðuneytið og undirstofnanir þess hafa á árunum 2018 til 2025 gert ellefu starfslokasamninga og nemur kostnaður vegna þeirra samtals 84,1 milljón króna. Munar þar langmestu um tvo starfslokasamninga sem ráðuneytið sjálft gerði árin 2023 og 2025 sem kostað hafa ráðuneytið samtals tæpar 45 milljónir. Þá gerði Fjölbrautaskólinn í Garðabæ einn starfslokasamning árið 2024 upp á 12,8 milljónir, en það er árið sem skólinn gerði starfslokasamning við Pál Vilhjálmsson framhaldsskólakennara sem rataði í fréttir á sínum tíma. Innlent 6. febrúar 2026 15:17
Báknið minnkað, Miðflokkur á móti Frumvarp Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um sameinað sýslumannsembætti hefur nú verið samþykkt á Alþingi. Skoðun 5. febrúar 2026 12:33
Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Forystumenn stjórnarandstöðunnar þjörmuðu að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna stöðu efnahagsmála í landinu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Formenn Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins sögðu stjórnvöld kenna öllu öðru en aðgerðum ríkisstjórnarinnar um aukna verðbólgu. Kristrún segir ríkisstjórnina ætla að „halda sig við planið“ og að ríkisstjórnin ætli ekki að „hlaupa upp til handa og fóta“ vegna einstakra mælinga. Innlent 5. febrúar 2026 11:37
Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. Lífið 5. febrúar 2026 07:01
„Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir nýlegt verðbólguskot beina afleiðingu útgjaldaaukningu ríkisstjórnarinnar. Almenningur borgi fyrir misfellur stjórnvalda en Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar segir um hraðahindrun að ræða. Innlent 4. febrúar 2026 21:01
Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Sigurjón Njarðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar. Í hans stað hefur Emilía Björt Írisardóttir Bachmann verið ráðin sem lögfræðingur þingflokksins. Ráðist var í breytingarnar í kjölfar afsagnar Guðbrandar Einarssonar sem þingmaður. Innlent 4. febrúar 2026 10:21
Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Í umræðu um atkvæðagreiðsluna kepptust þingmenn við að koma upp í pontu og fagna þessum áfanga og hrósa hver öðrum fyrir samstarfið og þá vinnu sem lögð var í að ná breiðri sátt um málið. Innlent 4. febrúar 2026 08:12
Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, gerði verulegar athugasemdir við tæknibúnað Alþingis í umræðu um störf þingsins á Alþingi í dag. Jón kvartaði meðal annars yfir gömlum tæknibúnaði, atkvæðagreiðslutökkum sem eigi það til að klikka og lélegri hljóðvist sem komi sér afar illa fyrir fólk eins og hann sem heyrir illa. Tónninn í ræðunni minnti allnokkuð á persónuna Indriða, sem Jón Gnarr lék sjálfur í Fóstbræðrum á sínum tíma, en undir lok ræðunnar tók Jón líkindin alla leið og rifjaði upp þekktar línur Indriða um bank í ofnum. Ræða Jóns uppskar mikil hlátrasköll í þingsal og forseti þingsins kvaðst taka undir athugasemdirnar. Lífið 3. febrúar 2026 14:22
Fækka sýslumönnum í einn Alþingi hefur samþykkt frumvarp þess efnis að fækka embættum sýslumanna úr níu í eitt. Ekki liggur fyrir hvar embættið verður staðsett. Innlent 2. febrúar 2026 18:33