Andrew sleppt úr haldi

Húsleit á heimilum Andrew Mountbatten-Windsor, bróður Bretakonungs, hélt áfram í dag. Andrew var sleppt úr haldi í gærkvöldi eftir að hafa verið í varðhaldi í ellefu klukkutíma. Hann er grunaður um að hafa lekið trúnaðarupplýsingum til vina sinna, meðal annars í tengslum við hrun íslensku bankanna. Lögreglumenn hafa í dag reynt að ná tali af fólki sem unnið hefur náið með Andrew síðustu ár, þar á meðal öryggisteymi hans. Þrátt fyrir að hafa verið sviptur titlinum prins á síðasta ári, er Andrew enn áttundi í erfðaröð bresku krúnunnar. Fjöldi fólks hefur kallað eftir því í dag að hann verði fjarlægður þaðan. Rannsókn á málinu gæti tekið nokkra mánuði.

12
01:25

Vinsælt í flokknum Fréttir