Sveitarfélögin reiðubúin að taka þátt í baráttu gegn verðbólgu
Seðlabankastjóri segir aukna verðbólgu að miklu leyti skýrast af hækkun opinberra gjalda. Bankinn hefur jafnframt varað við sjálfvirkum gjaldskrárhækkunum í takt við verðlag. Stýrivextir voru hækkaðir um fjórðung úr prósentustigi í vikunni, og eru nú átta prósent. Illa hefur gengið að draga úr verðbólgunni sem mældist 5,3 prósent í júlí. Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, mætti í myndver og fór yfir stöðuna.