Já og nei í Pallborði
Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrsta Pallborðið fór fram klukkan 14 í dag þar sem fulltrúar tveggja já-hreyfinga og tveggja nei-hreyfinga tókust á um helstu álitaefni Evrópuumræðunnar. Fyrir já-hliðina sitja Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, og Gréta María Grétarsdóttir, stjórnarkona í Já til að sjá. Fyrir nei-hliðina sitja Erna Bjarnadóttir, stjórnarkona í Heimsýn, og Júlíus Viggó Ólafsson frá Áfram Íslandi.