Neytendur

Allir Bónus vanillu­dropar innkallaðir

Agnar Már Másson skrifar
Hægt er að skila vörunni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Hægt er að skila vörunni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Aðsend

Bónus vanilludropar hafa verið teknir úr sölu í öllum verslunum. Aðföng hafa í samráði við Bónus og H-Berg ehf. ákveðið að innkalla allar „best fyrir“-dagsetningar af vörunni vegna óstaðfests gæðaflokks hráefnis í vörunni.

Aðföng biðja viðskiptavini Bónuss sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar, að því er fram kemur í tilkynningu sem Aðföng sendu frá sér í dag.

Viðskiptavinum Bónus sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að nota hana og er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. 

Upplýsingar um vöruna:

  • Vörumerki: Bónus
  • Vöruheiti: Bónus Vanilludropar
  • Nettómagn: 50ml glas, 500ml brúsi og 1 lítra brúsi
  • Umbúðir: Gler og plast.
  • Strikamerki: 5694311960143, 5694311960341, 5694311960150
  • Best fyrir dagsetning: Allar
  • Lotunúmer: Öll
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Framleiðandi: Framleitt af H-Berg ehf. Í Hafnarfirði
  • Dreifing: Verslanir Bónus





Fleiri fréttir

Sjá meira


×