Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar 4. nóvember 2026 07:00 Íslensk ferðaþjónusta hefur á síðustu árum vaxið langt fram úr björtustu vonum og verðmætasköpun greinarinnar aldrei verið meiri. En hvernig skiptist þessi stóra kaka? Fær landið allt sinn réttmæta skerf eða rennur stærsti bitinn til höfuðborgarsvæðisins? Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 ber skýr merki um skammsýni í skattlagningu ferðaþjónustunnar og jafnframt endurspeglar djúpstæða andúð á landsbyggðinni, ekki síst Suðurlandi.Sveitarstjórnir á Suðurlandi hafa lýst þungum áhyggjum af fyrirhuguðum skattahækkunum og aukinni gjaldtöku í ferðaþjónustu. Þær hafa kallað eftir raunverulegu samráði við stjórnvöld og heildstæðu mati á áhrifum aðgerðanna á Suðurlandi. Að hlustað verði á sjónarmið heimamanna og tryggt verði að tekjur af ferðaþjónustu nýtist einnig til uppbyggingar innviða á þeim svæðum þar sem verðmætin verða til. Þar að auki er krafist þess áhrif fyrirhugaðrar skattlagningar á Íslands sem framtíðar áfangastað ferðamanna verði skoðuð. Síðastliðinn sunnudag, 1. nóvember, mætti Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra á fund Viðreisnar í Árborg. Þar var húsfylli af fólki og margir komnir til að leita svara við því hvaða áhrif fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar muni hafa á ferðaþjónustu og atvinnulíf á Suðurlandi. Svör fjármálaráðherra voru meðal annars að aðgerðir fjárlaga sem beinast að Suðurlandi munu valda fækkun ferðamanna. Gestir fundarins fóru ekki beint brosandi heim af fundi og ég efast að ráðherra hafi brosað sjálfur á leiðinni yfir Hellisheiði til Reykjavíkur. Ársþing SASS samþykkti ályktun samhljóða, þvert á flokka um að þau væru ekki alfarið á móti auknum tekjum ríkissjóðs, til dæmis í formi komugjalds til Íslands. Gagnrýni SASS snýr að útfærslunni þar sem verulega ber á skorti á samráði stjórnvalda við sveitarfélög og hagsmunaaðila sem og að staðbundnar aðgerðir eru kynntar án nokkurs undirbúnings með hagaðilum. Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa skilað ríkisstjórninni áliti og mæla gegn þeirri íþyngjandi skattastefnu sem birtist í fjárlögunum. SAF og Samband sveitarfélaga á Suðurlandi hafa bent á að skynsamlegri leið sé að auka veltu og tekjur, stækka hagkerfið og tryggja ríkissjóði betri innkomu til framtíðar.Hagkerfið sem myndast hefur í kringum ferðaþjónustu á landsbyggðinni, skapar mikilvæg afleidd störf og heilsársstörf. Um 10% íbúa á öllu Suðurlandi starfa í ferðaþjónustu og hlutfallið er mun hærra í uppsveitum Árnessýslu, í kringum Gullna hringinn. Ferðaþjónustan er kjarni uppbyggingar á Suðurlandi, svo einfalt er það. Illa hefur gengið að fá fjármálaráðherra til að taka þá gagnrýni til greina en við leyfum okkur að vona að samtalið og skilningurinn geti átt sér stað og farsæl lending fyrir alla sé enn til skoðunar. Aðsókn ferðamanna til Íslands er ekki tilviljun, heldur niðurstaða áratuga langri vinnu sem byrjaði á 7. áratugnum þegar Flugfélag Íslands, nú Icelandair, hóf að bjóða farþegum á leið milli Evrópu og Norður-Ameríku fría viðdvöl (e. free stop-over) á millilendingum sínum í Keflavík. Árangur þessarar þjónustu er kenndur í markaðsfræðum og er enn sterkur burðarstólpi í komu ferðamanna til Íslands. Undanfarin fjögur ár hef ég starfað í ferðaþjónustu og heyri ótal sögur frá ferðamönnum sem nýttu sér stop-over Icelandair fyrir mörgum árum og ákváðu að gefa þessari eyju séns fyrir tilstuðlan þjónustu Icelandair. Þeir eyddu jafnvel einum degi í Bláa lóninu og öðrum á Gullna hringnum, en eru nú komnir aftur til að eyða meiri tíma á landinu. Í mörgum tilfellum koma þessir ferðamenn aftur með fleiri með sér, fjölskyldur og vini og keyra hringinn í kringum landið og skilja eftir sig tekjur víðar en í nágrenni Höfuðborgarsvæðisins. Gullni hringurinn er risastór söluvara fyrir allt Ísland. Þar vill svo vel til (eða nú jafnvel óheppilega) að þrjár ólíkar náttúruperlur eru svo nálægt hver annarri og einungis dagleið frá Reykjavík, fram og til baka. Fjármálaráðherra hefur sagt að skattaaðgerðirnar eigi að fækka þeim sem leggja leið sína á Gullna hringinn og dreifa ferðamönnum á aðra staði. Ég hvet hann til að horfa fram á veginn og leggja skammsýnina ofan í skúffu. Gullni hringurinn hefur verið lífæð ferðamennsku til Íslands og á stóran þátt í því að við getum haft opið á veturna, þegar færð er slæm víða um land og Gullni Hringurinn stendur traustur sína vakt, allt árið. Ferðamenn koma ekki hingað alfarið vegna tísku eða trendsins að ferðast á norðurslóðir. Þeir koma vegna markaðsstarfs og fjárfestinga ferðaþjónustunnar, sem keppir á alþjóðavettvangi um brotabrot ferðalanga sem vilja heimsækja kostnaðarsöm og köld lönd. Ísland er eitt dýrasta land í heimi, líka það strjálbýlasta í Evrópu og liggur úti í miðju Norður-Atlantshafi. Að ætla sér að dreifa ferðamönnum á aðra staði Íslands með skattlagningu á uppsveitir Suðurlands heldur ekki vatni. Það þarf mun frekar að halda áfram á þessari vegferð og tryggja að ferðamenn haldi áfram að koma því það er ekki í hendi. Að veðja svona gegn uppbyggingu ferðamannastaða á Suðurlandi getur reynst dýrkeypt, höldum því áfram að búa vel utan um þessa innviðauppbyggingu sem hefur átt sér stað. Samfélögin á Suðurlandi eiga gríðarlega mikið undir ferðamönnum. Vegna ferðamanna rísa kjörbúðir í þorpum og bæjum þar sem rekstrargrundvöll skorti áður. Vegna ferðaþjónustunnar höfum við aðgang að fjölbreyttari afþreyingu. Vegna ferðaþjónustunnar getum við séð fyrir okkur að flytjast að, byggja hús og stofna til fjölskyldu á svæðum sem áður áttu ekki framtíð. Vegna ferðaþjónustunnar hefur landbúnaður styrkst og atvinnutækifæri aukist á dreifbýlli svæðum. Vegna ferðamanna getum við haldið uppi dýrum innviðum. Vegna ferðaþjónustunnar er ríkir bjartsýni á landsbyggðinni. Ferðamenn styrkja landsbyggðina, Ferðaþjónustan stækkar kökuna Vegna þess þá hvet ég þingmenn Suðurkjördæmis að standa í lappirnar og gæta að við missum ekki það sem við höfum byggt fyrir íbúa okkar. Höfundur situr í sveitastjórn Hrunamannahrepps og formaður Atvinnu, ferða- og menningarnefndar Hrunamannahrepps. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hrunamannahreppur Ferðaþjónusta Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun