„Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Lovísa Arnardóttir skrifar 3. nóvember 2026 12:31 Sveitin var stofnuð fyrir um tuttugu árum. Aðsend Íslenska hiphop-sveitin Forgotten Lores fagnar tuttugu ára afmæli plötunnar Frá heimsenda með sérstökum afmælistónleikum í maí 2027. Hljómsveitin hefur ekki komið fram í tíu ár en einn meðlima segir Forgotten Lores alltaf meira vinahóp en hljómsveit og því hittist þeir reglulega.
Meðlimir sveitarinnar eru þeir Ársæll Þór Ingvason (Intro beatz), Baldvin Þór Magnússon (Class B), Benedikt Freyr Jónsson (Benni B-Ruff), Birkir Björns Halldórsson (Byrkir B) og Kristinn H. Sævarsson (Diddi Fel). Platan verður í öndvegi á tónleikunum en farið verður um víðan völl í tónlistarsögu sveitarinnar og litið yfir ferilinn, allt frá Týnda hlekknum til annarra kafla í sögu Forgotten Lores. Forgotten Lores hefur ekki komið saman í nær tíu ár. Aðsend Fyrsta breiðskífa sveitarinnar, Týndi hlekkurinn, kom út árið 2003 og árið 2006 kom út síðari platan, Frá heimsenda. Platan fékk mjög góðar viðtökur. Fréttablaðið gaf henni fimm stjörnur og sagði Forgotten Lores vera „ókrýnda kónga íslenska rappsins“. Platan fékk einnig fimm stjörnur hjá Morgunblaðinu og var síðar tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Í tilkynningu um tónleikana segir að nú þegar tuttugu ár eru liðin frá útgáfu Frá heimsenda komi sveitin saman á ný og þó svo að platan verði í aðalhlutverki verði kvöldið ekki bundið við þessa einu plötu. Rifja upp góða tíma „Þetta verður kvöld þar sem við rifjum upp, heyrum aftur og fögnum öllu því sem hefur orðið til á leiðinni,“ segir Benedikt Freyr um tónleikana. Hann segir þá í grunninn vinahóp og hljómsveitin hafi verið stofnuð í kringum það. Þeir hafi saman getað fengið útrás fyrir sinni listrænu sköpun. „Við erum í grunninn alltaf vinahópur, frá því að við vorum litlir. Ég, Diddi og Birkir ólumst upp saman í Árbænum, en Baddi, Gísli og Addi koma seinna inn í hópinn,“ segir hann. „Það voru ekki margir að gera hip-hop tónlist á þessum tíma,“ segir hann og að þeir hafi reglulega hist á tónleikum og viðburðum í fataversluninni Jónas á milli sem rekin var í hliðargötu á Laugarvegi um árabil. Benedikt segir sveitina lengi hafa talað um að koma saman fram og að hana hafi fyrst langað að halda upp á tuttugu ára afmæli Týnda hlekksins en ekki náð að gera sig klára. Hann segir sveitina einnig með óútgefið efni, nóg til að fylla EP-plötu, og að þeir muni fara yfir það, og útgefið efni á tónleikunum. „Það er eitthvað sem við eigum eftir að klára og kannski gefa einhvern tímann út,“ segir hann og að þeir njóti þess enn að koma fram saman. „Okkur finnst þetta enn sjúklega gaman, það er svo gefandi að halda tónleika og gerir svo mikið fyrir menningarlífið,“ segir Benedikt sem sjálfur hefur síðustu ár haldið fjölda tónleika í gegnum fyrirtæki sitt Liveproject. Síðast komu fram Tha Alkaholiks og Yasin Bey. „Það hefur alltaf verið ágætis sena á Íslandi en svo datt hún aðeins dálítið niður en hefur verið að rífa sig aftur upp og þá fær maður neistann á ný.“ Nánari upplýsingar um tónleikastað, dagsetningu og miðasölu verða kynntar síðar. Hægt er að skrá sig á póstlista Forgotten Lores til að fá fréttir af tónleikunum og tilkynningu um leið og forsala hefst.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Reykjavík Tengdar fréttir Forgotten Lores spila bara spari Rappsveitin Forgotten Lores kom rappinu á kortið á Íslandi sem tónlistarstefnu sem bæri að taka alvarlega og eiga að mörgu leyti heiðurinn að því hve vönduð íslensk rapptónlist hefur verið síðan. Þeir munu spila á Rappport tónlistarveislunni á laugardaginn. 18. maí 2017 10:15 Addi Intro söðlaði um og fór í annað tempó Addi Intro er einn færasti taktsmiður landsins, skaffaði undirspil fyrir flesta rappara landsins og var eftirsóttur. Hann ákvað þó að skipta um tempó, bókstaflega, og færði sig yfir í hústónlistina þar sem takturinn slær hraðar. 14. febrúar 2018 08:00 Platan verður óður til aldamótarapparanna Meðal gestarappara verða Cell 7, Kött Grá Pjé og 7Berg. 27. febrúar 2015 09:30 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Forgotten Lores spila bara spari Rappsveitin Forgotten Lores kom rappinu á kortið á Íslandi sem tónlistarstefnu sem bæri að taka alvarlega og eiga að mörgu leyti heiðurinn að því hve vönduð íslensk rapptónlist hefur verið síðan. Þeir munu spila á Rappport tónlistarveislunni á laugardaginn. 18. maí 2017 10:15
Addi Intro söðlaði um og fór í annað tempó Addi Intro er einn færasti taktsmiður landsins, skaffaði undirspil fyrir flesta rappara landsins og var eftirsóttur. Hann ákvað þó að skipta um tempó, bókstaflega, og færði sig yfir í hústónlistina þar sem takturinn slær hraðar. 14. febrúar 2018 08:00
Platan verður óður til aldamótarapparanna Meðal gestarappara verða Cell 7, Kött Grá Pjé og 7Berg. 27. febrúar 2015 09:30