Fótbolti

Óhugan­legt at­vik á Tenerife: Líðan mannsins al­var­leg en stöðug

Aron Guðmundsson skrifar
Mynd úr leik Tenerife af treyju félagsins
Mynd úr leik Tenerife af treyju félagsins Vísir/Getty

Ástand Jesús de Miguel, framherja Tenerife, er alvarlegt en stöðugt og liggur hann nú á sjúkrahúsi eftir alvarlegt atvik í leik liðsins í næstefstu deild Spánar í dag. 

Þessi þrítugi leikmaður missti meðvitund eftir harkalegt samstuð við Jesus Owono, markvörð FC Andorra í uppbótartíma venjulegs leiktíma. Atvikið vakti óhug og var leikurinn blásinn af.

Leikmenn á svæðinu báðu tafarlaust um aðstoð sjúkraliða og fékk Jesús aðhlynningu á vellinum í um stundarfjórðung áður en hann var fluttur á nærliggjandi sjúkrahús. 

Samkvæmt yfirlýsingu Tenerife er Jesús nú á gjörgæslu og er líðan hans sögð stöðug en alvarleg.

Owono, markvörður Andorra, var rekinn af velli með rautt spjald fyrir sinn þátt í samstuðinu.

Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan heimavöll Tenerife og beið þess að Jesús var fluttur með sjúkrabíl á nærliggjandi sjúkrahús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×