Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2026 13:33 Freyr Alexandersson og félagar fögnuðu góðum sigri en urðu fyrir slæmri upplifun í leiknum. Getty/Tullio Puglia Norska Íslendingafélagið Rosenborg hefur sent formlega skýrslu til norska knattspyrnusambandsins eftir að leikmaður liðsins varð fyrir meintu kynþáttaníði frá mótherja.
Leikmaðurinn er Amin Chiakha og atvikið varð í leik í norsku úrvalsdeildinni gegn Fredrikstad á laugardaginn. Freyr Alexandersson er þjálfari Rosenborg og Alfreð Finnbogason er íþróttastjóri félagsins. Norska félagið biður norska knattspyrnusambandið um að rannsaka atvikið ítarlega. „Þetta er atvik sem við tökum afar alvarlega. Amin nýtur fulls stuðnings okkar og við væntum þess að málið verði rannsakað ítarlega. Kynþáttafordómar eiga hvorki heima í norskri knattspyrnu né í samfélaginu almennt,“ sagði Tore Berdal, framkvæmdastjóri félagsins, á vefsíðu þess. Rosenborg biður norska sambandið einnig að endurskoða gula spjaldið sem Chiakha fékk í tengslum við atvikið. Félagið greinir frá því að það bíði nú afgreiðslu sambandsins á málinu. Amin Chiakha er tvítugur framherji sem kom á láni frá FC Kaupmannahöfn og hefur skorað 17 mörk í 24 deildarleikjum, þar á meðal tvö í sigrinum á Fredrikstad. „Það er mikilvægt að leikmönnum finnist þeir öruggir með að tilkynna ef þeir verða fyrir kynþáttafordómum eða mismunun. Enginn á að efast um að félagið standi að baki þeim þegar þeir láta í sér heyra,“ sagði Berdal. Rosenborg leggur áherslu á að félagið hafi núllumburðarlyndi gagnvart kynþáttafordómum og mismunun og muni halda áfram að vinna að inngildandi og öruggu knattspyrnuumhverfi fyrir alla. „Við stöndum saman að baki Amin í þessu máli. Baráttan gegn kynþáttafordómum er ábyrgð sem við deilum öll, og við munum alltaf tala skýrt þegar gildum okkar er ógnað,“ sagði Berdal.
Norski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Sjá meira