Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? 31. október 2026 12:30 Við tölum gjarnan um mikilvægi þess að vernda börn gegn ofbeldi, hlusta á þau og bregðast við þegar þau sýna merki um vanlíðan eða áhættuhegðun. En vernd barna verður ekki aðeins tryggð með því að bregðast við þegar hætta hefur skapast. Hún verður einnig að felast í því að koma í veg fyrir fyrirsjáanlega hættu. Þá vaknar mikilvæg spurning: Hvað gerist þegar lögbundin málsmeðferð barnaverndar getur sjálf skapað aðstæður sem auka hættu fyrir barnið sem henni er ætlað að vernda? Þetta er annmarki í löggjöfinni sem Alþingi þarf að taka alvarlega. Samkvæmt 21. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 ber barnaverndarþjónustu að tilkynna foreldrum að tilkynning hafi borist og upplýsa þá um ákvörðun sína í tilefni hennar innan viku frá því að ákvörðun var tekin. Heimilt er að fresta tilkynningu vegna ríkra rannsóknarhagsmuna. Hins vegar er ekki sérstaklega kveðið á um heimild til að víkja frá upplýsingagjöfinni þegar fyrir liggja upplýsingar um ofbeldi af hálfu annars forsjáraðila og rökstudd ástæða er til að ætla að upplýsingagjöfin geti skapað hættu fyrir barnið. Vandinn verður sérstaklega áberandi þegar foreldrar fara sameiginlega með forsjá og upplýsingaskyldan er framkvæmd án þess að nægilegt tillit sé tekið til fyrri ofbeldissögu, aðstæðna barnsins og þeirrar áhættu sem getur fylgt því að upplýsa tiltekinn forsjáraðila. Hugsum okkur barn sem sýnir áhættuhegðun og barnavernd fær tilkynningu vegna hennar. Foreldrar fara sameiginlega með forsjá, en fyrir liggur saga um ofbeldi af hálfu annars foreldris gagnvart hinu og/eða barninu sjálfu. Áhættuhegðun barnsins getur einmitt verið afleiðing þeirrar vanlíðanar og þeirra áhrifa sem fyrra ofbeldi hefur haft á það. Barnið vill ekki fara eða fer ekki í umgengni við foreldrið og fyrri reynsla þess af áreiti, ógnunum og stjórnandi hegðun hefur haft neikvæð áhrif á líðan þess. Jafnframt liggja fyrir upplýsingar um að þegar áreitið eykst versni líðan barnsins enn frekar og áhættuhegðun þess aukist. Þegar barnavernd upplýsir ofbeldisforeldrið um nýja tilkynningu getur það orðið tilefni til aukinna afskipta, áreitis, stjórnunar og hræðslu gagnvart hinu foreldrinu og á heimili þess. Barnið verður þá aftur fyrir áhrifum af þeirri hegðun sem hefur þegar haft skaðleg áhrif á öryggi þess og líðan. Ofbeldi þarf ekki að beinast beint að barninu í hvert sinn til að hafa áhrif á það. Þegar ofbeldisforeldri heldur áfram að beita stjórn, ógnunum eða áreiti gagnvart verndandi foreldri getur barnið orðið fyrir afleiðingunum, jafnvel þótt það sé ekki sjálft beinn skotspónn hegðunarinnar. Ofbeldið getur þannig haldið áfram í annarri mynd, löngu eftir að foreldrar hafa slitið sambandi eða umgengni hefur verið hætt. Þá er rétt að spyrja: Er tilgangi barnaverndar náð ef viðbrögðin við áhættuhegðun barns skapa aðstæður sem geta aukið hana enn frekar? Málið verður enn alvarlegra þegar barnaverndarþjónustan hefur sjálf áður kært foreldri vegna ofbeldis gegn sama barni. Kæra jafngildir vissulega ekki niðurstöðu um sekt, en fyrri afskipti barnaverndar, fyrirliggjandi gögn og upplýsingar um ofbeldi verða ekki afgreidd sem óviðkomandi þegar metið er hvort óhætt sé að upplýsa viðkomandi foreldri um nýtt mál. Slík saga verður að hafa raunverulegt vægi við mat á öryggi barnsins. Barnavernd þarf því ekki aðeins að meta tilefni tilkynningarinnar og þær aðstæður sem hún beinist að. Hún þarf einnig að meta hvaða afleiðingar eigin málsmeðferð og upplýsingagjöf geta haft fyrir barnið. Áhættumat verður að ná til þess hvort upplýsingagjöfin geti leitt til frekara ofbeldis, áreitis eða stjórnandi hegðunar sem stofnar öryggi barnsins í hættu. Löggjöfin sjálf sýnir að svigrúm til að taka tillit til hagsmuna barns við upplýsingagjöf er ekki framandi hugmynd. Í 18. gr. barnaverndarlaga er sérstaklega kveðið á um að barnaverndarþjónusta skuli tilkynna foreldri um tiltekin mál sem lögregla hefur tilkynnt um, mæli hagsmunir barnsins ekki gegn því. Þar er því þegar viðurkennt að upplýsingagjöf til foreldris geti þurft að víkja þegar hagsmunir barnsins krefjast þess. Það vekur eðlilega spurningu hvers vegna ekki er að finna sambærilega skýra heimild í 21. gr. þegar barnaverndarþjónusta fær aðra tilkynningu og fyrir liggur saga um ofbeldi og fyrirsjáanleg hætta fyrir barnið. Þessi sjónarmið hafa einnig birst í framkvæmd. Í úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 426/2023 var fjallað um aðgang foreldris að gögnum í barnaverndarmáli þar sem fyrir lágu upplýsingar um meint ofbeldi gagnvart börnum og meint heimilisofbeldi og hótanir gagnvart móður þeirra. Barnaverndarþjónustan hafði talið að afhending viðkvæmra gagna gæti ógnað öryggi barnanna og skaðað hagsmuni þeirra. Þótt úrskurðurinn hafi varðað aðgang að gögnum samkvæmt 45. gr. barnaverndarlaga en ekki upplýsingaskyldu samkvæmt 21. gr. sýnir málið að hætta sem getur fylgt upplýsingagjöf til foreldris er raunverulegt álitaefni í barnaverndarmálum. Úrskurðarnefndin lagði jafnframt áherslu á að slíkar takmarkanir yrðu að byggjast á einstaklingsbundnu mati á hverju skjali fyrir sig. Einnig má nefna álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 483/2025, þar sem fjallað var um viðbrögð barnaverndarþjónustu við tilkynningu um andlegt ofbeldi gagnvart barni. Þar var meðal annars fjallað um þá afstöðu barnaverndarþjónustu að ekki væri ástæða til að hefja könnun þar sem forsjármál væri þegar rekið fyrir dómstólum. Umboðsmaður taldi að slíkt sjónarmið eitt og sér, án frekara mats, gæti ekki réttlætt þá afgreiðslu. Þótt málið fjalli ekki um upplýsingagjöf til foreldra undirstrikar það mikilvægi þess að barnavernd framkvæmi sjálfstætt og fullnægjandi mat á aðstæðum og hagsmunum barnsins. Þá verður einnig að horfa til 4. gr. barnaverndarlaga, þar sem kveðið er á um að hagsmunir barna skuli ávallt hafðir í fyrirrúmi í starfsemi barnaverndaryfirvalda, og 22. gr. laganna, þar sem áhersla er lögð á að könnun máls fari fram í samræmi við hagsmuni og þarfir barns. Þessar meginreglur verða að hafa raunverulegt vægi í framkvæmd, ekki aðeins þegar ákvörðun er tekin um úrræði heldur einnig þegar tekin er ákvörðun um hvernig upplýsingagjöf til foreldra skuli háttað. Sameiginleg forsjá má ekki verða sjálfvirk forsenda fyrir upplýsingagjöf án slíks áhættumats. Réttindi foreldra til upplýsinga eru mikilvæg, en þau eru ekki einu réttindin sem þarf að vernda. Hagsmunir, öryggi og réttindi barnsins verða að hafa raunverulegt vægi í ákvörðuninni. Þess vegna þarf að lögfesta skýra undanþágu frá skyldu barnaverndarþjónustu til að tilkynna foreldrum þegar sérstakar aðstæður og fyrirliggjandi upplýsingar gefa tilefni til að ætla að upplýsingagjöf geti skapað alvarlega hættu fyrir barnið. Ég kalla ekki aðeins eftir heimild til að fresta tilkynningu. Frestun vegna rannsóknarhagsmuna er ekki það sama og undanþága frá skyldunni til að tilkynna foreldri. Það þarf að vera skýrt í lögum að barnaverndarþjónusta geti, að undangengnu einstaklingsbundnu og rökstuddu áhættumati, ákveðið að tilkynna ekki öðru foreldrinu um að tilkynning hafi borist þegar það er nauðsynlegt til að tryggja öryggi barnsins. Slík undanþága þarf að vera skýrt afmörkuð, byggjast á raunverulegri og einstaklingsbundinni áhættu og ákvarðanir þurfa að vera rökstuddar og háðar viðeigandi endurskoðun. Markmiðið er ekki að svipta foreldra réttindum sínum að óþörfu heldur að tryggja að réttindi þeirra séu ekki framkvæmd með þeim hætti að öryggi barnsins sé sett í hættu. Ég skora því á Alþingi að endurskoða 21. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og lögfesta skýra undanþágu frá skyldu til upplýsingagjafar við þessar aðstæður. Löggjöfin þarf að gera barnaverndarþjónustu kleift að bregðast við þegar ofbeldissaga og fyrirliggjandi upplýsingar sýna að það að upplýsa báða foreldra um nýtt mál geti sjálft aukið hættu fyrir barnið. Það á ekki að þurfa að hefja nýtt forsjármál til að barnavernd geti tekið mið af ofbeldissögu fjölskyldu. Það á ekki að þurfa að bíða eftir nýju atviki til að bregðast við fyrirsjáanlegri hættu. Og barn á ekki að þurfa að bera afleiðingarnar af því að kerfið meti hvert nýtt mál eins og sagan byrji alltaf upp á nýtt. Barn á alltaf að njóta vafans þegar kemur að öryggi þess. Fyrri saga um ofbeldi má ekki hverfa úr myndinni við það eitt að ný tilkynning berst eða ný málsmeðferð hefst. Vernd barna verður að ná til alls þess sem getur ógnað öryggi þeirra, þar á meðal afleiðinga þeirra ákvarðana sem teknar eru í nafni verndar þeirra. Barnavernd verður að hafa skýrar lagaheimildir til að fyrirbyggja að málsmeðferðin sjálf auki hættu fyrir barn. Barnið á að vera öruggara eftir að hafa leitað til kerfisins en það var áður. Höfundur er ML nemi í lögfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun