Skoðun

Við­skipta­ráð og Láki jarðálfur

Andri Snær Magnason skrifar

Þegar Viðskiptaráð skilar af sér skýrslu má bóka að viðfangsefnið sé að eyðileggja eitthvað sem er mikilvægt, fallegt og jafnvel heilagt og svo má líka bóka að skýrslan sé óvönduð og uppfull af villum. Þannig var olíuskýrslan, þannig var menningarskýrslan og nú vill Viðskiptaráð leggja niður Rammaáætlun með markmiði um að tvöfalda orkuframleiðslu á 15 árum. 

Þeir birta kort með nánast öllum náttúruperlum Íslands, Torfajökulsvæði, Jökulsá á Fjöllum, Kverkfjöll, you name it. Skýrslan er svolítið fyndin vegna þess að þar segir að aðeins orkukostir yfir 600MW séu þess eðlis að þeir réttlæti aðkomu Alþingis. Vandinn er sá að ENGINN orkukostur á Íslandi er yfir 570MW. Virkjun Jökulsár á Fjöllum þar sem henni er veitt gegnum Arnardal út á austurland er langstærsti kosturinn, betur þekkt sem lokaáfangi LSD - er 570MW. Þetta er auðvitað kostulegt. Að setja 600MW í skýrslu sem viðmið þegar ENGINN 600 MW virkjunarkostur er til á Íslandi. Kannski er þetta villa. Kannski halda þau að Íslendingar séu safn af hálfvitum sem kunna ekki að telja. Kannski eru þeir bara eins og Láki Jarðálfur og finnst gaman að vera vondir. Ég skil ekki hvað þeim fyrirtækjum sem halda uppi Viðskiptaráði gengur til.

Það er ekki hægt að segja að framkvæmdasaga síðustu 20 ára gefi nokkurt tilefni til þess að opið veiðileyfi verði gefið á náttúru Íslands. Kísilverið í Helguvík varð gjaldþrota með 22 milljarða tjóni. Álverið í Helguvík var tjón upp á 20 milljarða. Thorsil Í Helguvík varð gjaldþrota á þessu ári með hundruð milljóna tapi. Kísilverið á Bakka færði alla fjárfestingu lífeyrissjóða niður í núll og tapið nemur enn fleiri milljörðum. Hvað kallar þá á þessa tvöföldun? Hvað kallar á alla þessa orku?

Ég skil ekki hvernig opinber fyrirtæki eins og Landsvirkjun og Orkuveitan sé stætt á að lobbía gegn Alþingi. Ég hvet forsvarsmenn þessara fyrirtækja til að draga þennan ófögnuð til baka og manna þetta ráð af einhverri fagmennsku - já eða hreinlega mennsku. Það væri heiðarlegra að forstjórar stigu fram og hættu að fela sig bak við hugmyndafræðilega handrukkara. Að þeir lýstu yfir því formlega að ný skyldi hefja stórsókn í hernaðnum gegn landinu. Ef þeir gera það ekki verður að líta svo á að þetta sé stefna þeirra og hugmyndafræði. 

Höfundur er rithöfundur




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×