Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar 31. október 2026 11:01 Suðurnesin hafa verið eitt mesta vaxtarsvæði landsins undanfarin ár. Íbúum hefur fjölgað hratt samhliða uppbyggingu atvinnulífs sem reiðir sig að stórum hluta á flug- og ferðaþjónustu. Svo hröðum vexti fylgja miklar áskoranir, ekki síst fyrir sveitarfélögin sem þurfa að halda í við eftirspurn eftir húsnæði. Um leið opnast fjölmörg tækifæri til fjölbreyttari atvinnuuppbyggingar í kringum alþjóðaflugvöllinn og til að styrkja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum. Miðvikudaginn 14. október fer fram ráðstefnan „Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar“ í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Markmið hennar er meðal annars að ræða hvernig Suðurnesin geta knúið áfram vöxt fyrir Ísland allt. Sérfræðingar úr ýmsum áttum fjalla um tækifærin sem leynast á svæðinu, meðal annars markvissa uppbyggingu, áhrif aukinnar erlendrar fjárfestingar á verðmætasköpun og samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu samhengi. Suðurnesin sem fyrirmynd Það hefur margsannað sig að þrautseigja og kraftur einkenna bæði fólk og fyrirtæki á Suðurnesjum, og metnaðurinn fyrir framtíðinni hefur staðið af sér alls konar áskoranir síðustu ár. Við sem vinnum að því hlúa að og styrkja enn frekar samfélagið og atvinnulífið á Suðurnesjunum vitum að ef rétt er að hlutunum staðið getur svæðið enn frekar orðið drifkraftur vaxtar á Íslandi öllu. Hér er nú þegar að finna margar þeirra vaxtargreina sem ný atvinnustefna stjórnvalda setur á oddinn, svo sem gagnaver, landeldi, jarðvarma, iðngarða og ferðaþjónustu. Það er ótal margt sem gerir Suðurnesin einstök, ekki aðeins í samanburði við önnur svæði á Íslandi heldur á heimsmælikvarða. Má þar nefna Svartsengisvirkjun, þar sem þróuð var aðferð til að hita ferskvatn með jarðhitagufu og þar sem brautryðjendastarf var unnið í því að vinna saman raf- og varmaorku. Eins má líta til herstöðvarinnar sem mótaði atvinnulíf á svæðinu í um hálfa öld og Keflavíkurflugvallar sem er langmikilvægasta tenging landsins við umheiminn og mikilvæg undirstaða efnahags- og atvinnulífs á svæðinu. Að lokum má ekki gleyma einstakri náttúru Reykjanesskagans, sem fékk árið 2015 viðurkenningu sem UNESCO Global Geopark árið 2015. Fjölbreytt atvinnulíf sem stendur af sér sveiflur Það er okkar hlutverk að styrkja Suðurnesin sem aðlaðandi stað til að búa á, starfa og reka fyrirtæki. Við þurfum fjölbreyttara atvinnulíf sem stendur af sér sveiflur og byggir á styrkleikum svæðisins: grænni orku, nálægð við alþjóðaflugvöll og öflugum mannauði. Mikil tækifæri felast í því að efla flugvallartengda starfsemi, en ekki síður í því að hlúa að og byggja upp allt það góða sem fyrir er. Við höfum bæði metnað og trú á því að Suðurnesin geti verið leiðandi afl í að byggja upp alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands á heimsvísu en til þess þarf áfram haldandi seiglu og gott samstarf. Kadeco, sem leiðir samstarf um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll, Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa því tekið höndum saman. Við undirrituð trúum því að öflug Suðurnes séu, og geti í enn ríkara mæli orðið, lykillinn að samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavettvangi og hlökkum til að ræða þessi málefni betur með öðrum sem hafa metnað og trú á svæðinu. Höfundar eru Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, og Guðjón Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnurekenda á Suðurnesjum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun