Skoðun

Til­koma gervi­greindar – kötturinn í Undra­landi?

Ólafur Aron Sveinsson skrifar

Eitt það áhugaverðasta finnst mér við breytingar þegar þær steðja að, er að við sjálf reynumst gjarnan lykilbreyta í hvernig breytingin fer fram. Allavega í okkar eigin lífi og aðstæðum. Hvernig við bregðumst við og hvernig við stillum okkur að því umhverfi sem um ræðir – breytir framvindunni.

Tilkoma gervigreindar er fyrir mér þess eðlis. Breytingar sem verða líklega ekki dregnar til baka og við höfum ekki stjórn á – því aldan er komin.

Ætlum við að drukkna í öldunni eða brimbrettabruna á henni?

Því gervigreind er risa alda sem ríður yfir allt „upplýsinga“ samfélagið. Meiri upplýsingar en við gætum nokkurn tímann fært okkur í nyt. Og meiri upplýsingar sem eru gagnslausar en þægilegt er að hugsa sér til um. En betur fer snýst málið kannski ekki allt um upplýsingar – heldur kannski ennþá meira hvernig við nálgumst þær og til hvers.

En það er kannski tækifærið – að vinna enn skýrar og markvissara með hverjar aðstæður fyrir sig. Að skerpa og opna okkar eigin nálgun. Hvort sem viðkomandi er falið að bregðast við í leiðtogahlutverki innan skipulagsheildar - með sambands heilindi gagnvart fleiri en bara sjálfum sér, eða að bregðast við sem manneskja sem er að leita sér betri leiða – já eða allt í senn.

Bæði og - frekar en annaðhvort eða

Gervigreindin er margrétta hlaðborð. Óteljandi vinklar, víðfeðm sjónarmið – margar leiðir. Hún er betri en við að sjá hvernig hlutir tengjast saman en við flest. Hún sér bæði og – en ekki annaðhvort eða.

Mín upplifun er að samkvæmt því, að þá hafa okkar eigin sjónarmið, upplifun, þekking, innsýn mögulega aldrei skipt meira máli en nú – ekki í því skyni að hafa rétt fyrir okkur og annar rangt. Heldur í því skyni að taka ábyrgð á hvort við erum staðsett í eigin veruleika og virða þaðan önnur sjónarmið á sama tíma. Þannig höfum við okkar eigin nálgun þar sem hún á heima - í okkar eigin höndum.

Gervigreindin speglar okkur þaðan í það samhengi sem við setjum upp fyrir hana. En hún sér líka og tekur tillit breyta sem við gætum hæglega farið á mis við. Hún getur sett hluti upp í kerfi, straumlínulagað og einfaldað þannig að það leiði af sér skilvirkni – svo lengi sem við vitum hvaðan við erum að koma og hvert við erum að fara – allt þar á milli getur hún hjálpar til að fylla upp í og aðlagað.

Hún skerpir hugsanaferla okkar bæði til að skoða og innihalda eigin sjónarmið og nálganir – án þess að útvista þeim til hennar. Hún getur verið spegill á hvernig hugsun, án fordóma, ályktana, andstöðu virkar – en það kallar samt á við séum sjálf enn meira vakandi fyrir því sem er viðeigandi.

Gervigreindin kallar okkur til aukinnar viðveru og meðvitundar en ekki minni.

Hún vinnur útfrá því hvar við erum sjálf staðsett. En líka að virkja ímyndunaraflið á uppbyggilegan hátt. Svo lengi sem við séum yfir höfuð staðsett á brimbrettinu. Erum við í sambandi við okkar eigin tilgang? Hversu opin erum við fyrir speglun? Hversu tengd erum við því umhverfi sem við erum að vinna með? Síðast en ekki síst hversu mikið stýrast ákvarðanir mínar af álagi og streitu – ytri þáttum?

Í þeim skilningi er gervigreind samstarfs- en ekki samkeppnisaðili okkar.

Hún er útvíkkun en ekki útvistun á okkar eigin hugsun og sjónarmiðum.

Hún er bæði greið leið ef við vitum og treystum hvert við stefnum, sem og illgresisgarður ef við erum týnd af leið. Hún er kötturinn í Undralandi.

Hvert við förum – veltur á okkur sjálfum.

Hún er ekki bjargvættur ef þú ert týnd/ur – en samt hjálpartæki ef þú veist hvert þú stefnir.

Ef við útvistum okkur til gervigreindar, getur hún orðið öfgafull skrumskæling á veruleikanaum sem magnar upp hugmyndir sem byggja á ótta og misskilningi – ranghugmyndir og tilgangsleysi. Þar sem dystópía kaffistofunnar veðrast upp í storma Atlantshafsins. En sem betur fer er hún enn sem komið er bara stormur í vatnsglasi. Glasið er í okkar höndum,

Framlenging en ekki staðgengill?

Stóra bankið á brúninni sem ég heyri er einfaldlega að útvista ekki því sem skiptir okkur máli. Heldur halda eigin jafnvægi – standa á brimbrettinu þegar kemur að ,,sörfinu“ um gagnaver heimsins.

Það myndi taka sig út í skýrari gildum og stefnu sem við ræktum með okkur, aukin meðvitund um hvað við þurfum hverju sinni. Líka hversu opin við erum fyrir speglun án þess að missa þráðinn við okkur sjálf – því gagnlegri verður útkoman myndi ég halda. Fyrir bæði einstaklinga og sameiginlegar heildir.

Meginmunur er á hvort hún sé framlenging af, fremur en staðgengill fyrir það sem okkur varðar.

Við sjálf, fyrirtækið, heimilisreksturinn, þjóðfélagið. Að útvista sem minnst okkar eigin vistkerfi kann að reynast stóra breytan í þessum breytingum. Þaðan er gríðarlegt tækifæri bæði til stækkunar á eigin sjóndeildarhring og betri nýtingar á því sem við nú þegar höfum.

Betra jafnvægi í einkalífi, minni tími í óþarfa, meiri tími í lífið, heilbirgðari vinnustaðir, betri rekstur – en aðallega betra samband við okkar eigin þarfir og taugakerfi. Greiðari leið til að tengjast og skilja aðstæður sem við stöndum frammi fyrir. En ekki til útvistunar – til hliðsjónar.

En minni útvistun þýðir þá líklega meiri viðvera.

Ekki viðvera í því skyni að vera bara á staðnum – heldur að vera til staðar til að bregðast betur við í meðvitund og stillingu. Vera nógu mikið við til að hlusta á eigin hyggjuvit og innsæi – á sama tíma og við sjáum út praktíska þætti samhliða.

Bregðast við breytingum með því að vera sjálf breytan?

Er það mögulega tækifærið fólgið í tilkomu gervigreindar?

Höfundur er starfar fyrir rekstarþjónustu Reykjavíkurborgar.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×