Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar 30. október 2026 16:32 Október er alþjóðlegur upplýsingaöryggismánuður. Ein af þeim ógnum sem er áberandi um þessar mundir er netárásaraðferð sem kallast ClickFix. Vítin eru til að varast þau og það áhrifaríkasta sem við getum gert er að þekkja og vera meðvituð um ógnirnar. Hvað er ClickFix? ClickFix er netárásaraðferð sem byggir á félagslegri blekkingu (e. social engineering), þar sem netglæpamenn reyna að fá notendur til að framkvæma aðgerðir sem geta leitt til þess að spilliforrit sé sett upp á tölvum þeirra. Í stað þess að reyna að brjótast beint inn í tölvuna er markmiðið að fá notandann sjálfan til að keyra skaðlegar skipanir, oft undir því yfirskini að verið sé að leysa tæknilegt vandamál eða framkvæma nauðsynlega staðfestingu. ClickFix getur meðal annars birst sem: Falsað CAPTCHA-próf þar sem þú færð beiðni um að staðfesta að þú sért ekki vélmenni með því að fylgja óvenjulegum leiðbeiningum. Villuboð á vefsíðum þar sem þér er sagt að framkvæma ákveðnar aðgerðir til að laga vandamál. Skilaboð um að nauðsynlegt sé að uppfæra hugbúnað eða breyta stillingum tölvunnar. Hvað ber að varast? Algeng er að ClickFix árás hefjist á að notandi sé beðinn um að opna forrit eða framkvæma skaðlega skipun á tölvunni sinni. Stoppaðu strax og lokaðu vefsíðunni ef óvænt skilaboð biðja þig um eitthvað af eftirfarandi: Ýta á Windows + R til að opna keyrsluglugga. Opna PowerShell, Command Prompt eða Terminal. Afrita og líma inn skipun til að leysa meint vandamál. Keyra skipun til að staðfesta að þú sért manneskja. Slökkva á öryggisvörnum eða breyta öryggisstillingum tölvunnar. Hvað áttu að gera ef þú verður fyrir ClickFix-árás? Ef þú hefur fylgt grunsamlegum leiðbeiningum eða keyrt skipun sem gæti tengst ClickFix skaltu aftengja tölvuna frá netinu. Næst þarf að athuga hvort spillibúnaður hafi verið settur upp á tölvunni og hreinsa hann út. Það getur verið gott að leita sér hjálpar á þessu stigi, t.d. hjá CERT-IS (www.cert.is). ClickFix er gott dæmi um hvernig netglæpamenn nýta sér vilja okkar til að leysa vandamál fljótt og halda áfram með dagleg verkefni. Það er mikilvægt að þekkja slíkar ógnir og vera meðvituð um aðferðirnar sem netglæpamenn nota. Um leið og við höfum lært að greina áhættumerkin erum við strax mun betur í stakk búin til að varast þeim. Með aukinni fræðslu og vitundarvakningu getum við dregið úr hættu á netárásum og því tjóni sem þær kunna að valda. Höfundur er upplýsingaöryggisstjóri hjá Landsbankanum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Netöryggi Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun