Sport

Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Magnús Már er eftirsóttur enda unnið þrekvirki í Mosfellsbænum. Mamma hans situr í stjórn knattspyrnudeildar sem vill eðlilega ekki sleppa honum til Blikanna.
Magnús Már er eftirsóttur enda unnið þrekvirki í Mosfellsbænum. Mamma hans situr í stjórn knattspyrnudeildar sem vill eðlilega ekki sleppa honum til Blikanna. vísir/ívar

Emil Atlason hefur yfirgefið Stjörnuna fyrir hlýjan faðm Rúnars Kristinssonar. Gríðarlega sterkt hjá Rúnari að landa Emil til Fram.

Stjarnan missir þar sextán marka mann og markamaskínu fyrir félagið síðustu sex ár.

Magnús Már Einarsson var í skotlínunni hjá Blikum en Afturelding tekur ekki í mál að sleppa honum. Skiljanlega enda hefur Magnús unnið þrekvirki fyrir félagið. Mamma Magnúsar situr í stjórn knattspyrnudeildar og spurning hvað hún hefur sagt í málinu.

Bónus deild karla er loksins byrjuð almennilega. Frábærir leikir í gær. Þar stóð upp úr stórleikur Tindastóls og Álftaness. Slagsmál, framlenging og allur pakkinn.

Grindavík og Njarðvík mætast svo í áhugaverðum leik í kvöld.

Enski boltinn um helgina er einnig mjög áhugaverður. Chelsea gegn Man. Utd í hádeginu á morgun og svo er stórleikur Liverpool og Arsenal á sunnudaginn.

Besta sætið er sem fyrr aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×