Sport

Skoruðu tvö síðustu mörkin og náðu jafn­tefli í Skógarselinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Perla Ruth Albertsdóttir skoraði mikilvægt mark í lok leiksins.
Perla Ruth Albertsdóttir skoraði mikilvægt mark í lok leiksins. Vísir/Anton Brink

Nýliðar Selfoss fóru heim með stig úr Breiðholtinu í kvöld eftir jafntefli á móti ÍR í Skógarselinu.

ÍR var tveimur mörkum yfir á lokakaflanum en Selfosskonur skoruðu tvö síðustu mörkin og tryggðu sér 25-25 jafntefli.

Perla Ruth Albertsdóttir og Hulda Hrönn Bragadóttir skoruðu síðustu mörk leiksins og Selfossvörnin hélt markinu hreinu síðustu mínútur leiksins.

ÍR var 13-12 yfir í hálfleik og náði tveggja marka forskoti á lokakaflanum eftir jafnan seinni hálfleik. Selfosskonur gáfust ekki upp og náðu í mikilvægt stig.

Harpa Valey Gylfadóttir skoraði níu mörk fyrir Selfoss og Hulda Hrönn Bragadóttir var með sex mörk. Sylvía Bjarnadóttir skoraði þrjú mörk.

Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði tíu mörk fyrir ÍR og þær Anna María Aðalsteinsdóttir, Karen Tinna Demian, Matthildur Lilja Jónsdóttir og Sigrún Ása Ásgrímsdóttir voru allar með þrjú mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×