„Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sindri Sverrisson skrifar 28. október 2026 07:00 Markús Páll mætti glæsilegur til fara í Stúkuna um helgina áður en hann flaug svo til móts við stóra bróður sinn á Ítalíu. Sýn Sport Hinn tvítugi Markús Páll Ellertsson fór á kostum með liði ÍA í sumar og var valinn efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar. Hann mætti í beina útsendingu í lokaþætti Stúkunnar og greindi frá því að markmið sitt hefði verið að skora 15 mörk líkt og hann einmitt gerði. „
Auðvitað hefði ég viljað að liðið myndi enda ofar en þetta. En já, markmiðið var 15 mörk og það má því segja að ég hafi náð því,“ sagði Markús Páll sem endaði þó með ÍA í 4. sæti deildarinnar. Viðtalið við Markús má sjá hér að neðan. Klippa: Stúkan - Markús Páll efnilegastur og náði markmiðinu Markús er uppalinn Framari en eftir dvöl á Ítalíu sneri hann heim til Íslands og ákvað að spila með ÍA í sumar. Aðspurður hvenær hann hefði hætt að hugsa: „Ég vona að ég standi mig“ og hugsað þess í stað: „Ég er maðurinn“ svaraði hann hlæjandi: „Eftir fyrsta leik,“ en bætti svo við: „Eftir fyrsta leikinn á undirbúningstímabilinu hugsaði ég reyndar: „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Ég skoraði ekki og þá byrjaði smá stress. En svo þegar tímabilið byrjaði og ég skoraði tvö mörk í fyrsta leik þá sá ég að ég gæti þetta alveg.“ Ljóst er að Markús gæti vel átt eftir að feta í fótspor eldri bróður síns, Mikaels Egils, sem spilar í ítölsku A-deildinni og með íslenska A-landsliðinu. Hann flaug einmitt strax um helgina í frí til bróður síns og ætlar svo að slaka á í golfi en hvert stefnir svo sá efnilegasti í Bestu deildinni? Vel tekið og kynntist glæstri sögu ÍA „Auðvitað stefni ég bara lengra og hærra. Ég veit ekki hvað er að gerast núna, vil ekki vita það, og það er svolítið undir umboðsmanninum komið að sjá hvað er best fyrir mig. Fyrir þetta tímabil tók ég ákvörðun um að koma upp á Skaga og ég sé að það var rétt hugmynd.“ Fótboltinn er hvergi eins samofinn sögu bæjar eins og á Akranesi og Markús varð vel var við áhuga fólks og glæsta sögu ÍA: „Ég spilaði vel þannig að það voru bara allir að koma upp að mér og segja að ég stæði mig vel og svona,“ sagði Markús léttur. „Áður en ég fór upp á Skaga vissi ég þannig séð ekkert um sögu Skagans en maður lærir hana þegar maður fer þangað og fattar hversu mikið vald er þarna,“ bætti hann við en viðtalið má sjá hér að ofan.
Besta deild karla Stúkan ÍA Tengdar fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ „Hún verður ein af skærustu stjörnum okkar [Íslendinga],“ segir Guðni Eiríksson, þjálfari FH, um Ídu Marín Hermannsdóttur, besta leikmann Bestu deildarinnar á nýafstöðnu tímabili. 27. október 2026 20:32 „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ „Þetta er búið að vera langt tímabil og mikið af „upp og niður“-augnablikum. Bæði erfiðir tímar og frábærar stundir saman,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson um nýafstaðið tímabil með Víkingi. Hann varð aftur Íslandsmeistari með liðinu og var svo kosinn besti leikmaður ársins af leikmönnum Bestu deildarinnar. 27. október 2026 07:03 Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, bætti markamet Bestu deildarinnar í lokaumferð er KR vann 8-3 sigur á Breiðabliki. Hann gerði tímabilið upp í lokaþætti Stúkunnar. 26. október 2026 13:00 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira
„Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ „Hún verður ein af skærustu stjörnum okkar [Íslendinga],“ segir Guðni Eiríksson, þjálfari FH, um Ídu Marín Hermannsdóttur, besta leikmann Bestu deildarinnar á nýafstöðnu tímabili. 27. október 2026 20:32
„Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ „Þetta er búið að vera langt tímabil og mikið af „upp og niður“-augnablikum. Bæði erfiðir tímar og frábærar stundir saman,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson um nýafstaðið tímabil með Víkingi. Hann varð aftur Íslandsmeistari með liðinu og var svo kosinn besti leikmaður ársins af leikmönnum Bestu deildarinnar. 27. október 2026 07:03
Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, bætti markamet Bestu deildarinnar í lokaumferð er KR vann 8-3 sigur á Breiðabliki. Hann gerði tímabilið upp í lokaþætti Stúkunnar. 26. október 2026 13:00