Fótbolti

Drottningin í fá­mennan hóp

Valur Páll Eiríksson skrifar
Drottningin Alexia Putellas með Gullboltann í þriðja sinn á sviðinu í gær.
Drottningin Alexia Putellas með Gullboltann í þriðja sinn á sviðinu í gær. EPA

Alexia Putellas var í gær valin besti leikmaður heims í þriðja sinn. Hún hefur einokað verðlaunin ásamt liðsfélaga sínum til síðustu ára, Aitönu Bonmatí undanfarin sex ár.

Putellas, sem er gjarnan nefnd La Reina, drottningin, vann verðlaunin með yfirburðum í gær eftir stórkostlegt tímabil með Barcelona áður en hún sjokkeraði fótboltaheiminn með því að skipta til London City Lionesses í sumar.

Putellas hafði unnið verðlaunin árin 2021 og 2022 en Aitana Bonmatí, liðsfélagi hennar hjá Barcelona, hlaut þau þrjú ár í röð frá 2023 til 2025. Verðlaunin hafa aðeins verið veitt í kvennaflokki í átta ár en þær tvær unnið þau sex sinnum á átta árum.

Ada Hegerberg (2018) og Megan Rapinoe (2019) eru hinir tveir leikmennirnir sem hafa hlotið verðlaunin.

Putellas fer í fámennan hóp þeirra sem hafa unnið verðlaunin svo oft, sé litið til bæði karla og kvenna. Í karlaflokki er Lionel Messi lang sigursælastur með átta verðlaun frá 2009 til 2023 og Cristiano Ronaldo hlaut boltann fimm sinnum frá 2008 til 2017.

Einu þrír karlarnir, fyrir utan Messi og Ronaldo, sem hafa fengið Gullboltann þrisvar: Marco van Basten, Michel Platini og Johan Cruyff.Samsett

Aðeins þrír hafa svo unnið verðlaunin þrisvar; Frakkinn Michel Platini fékk þau þrjú ár í röð frá 1983 til 1985, Hollendingurinn Johan Cruyff yfir fjögurra ára tímabil frá 1971 til 1974 og Hollendingurinn Marco van Basten á fimm ára tímabili frá 1988 til 1992.

Putellas fer því í hóp með þeim þremur auk Bonmatí yfir leikmenn sem hafa hlotið Gullboltann í þrígang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×