Skoðun

Líf­eyris­sjóðs tekjur og skerðing elli­líf­eyris

Sigurður Tómas Garðarsson skrifar

Þó lög um almannatryggingar skilgreini atvinnutekjur og lífeyrissjóðstekjur í orðskýringum laganna með vísan í annars vegar lög um tekjuskatt og hins vegar lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda ..., þá er ekki þar með sagt að vísan orðskýringanna sé skýr lagaheimild um að frítekjumark vegna atvinnutekna nái ekki til greiðslna úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum.

Eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og endurgjald fyrir vinnu.

Hið sérstaka frítekjumark vegna atvinnutekna er ívilnandi regla borgurunum til hagsbóta. Lífeyrisgreiðslur njóta verndar eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar. Ef þær eru grundvöllur reiknireglu sem leiðir til skerðinga annarra tekna lífeyrisþega þá er eignarréttur lífeyrisþegans skertur. Til þess þarf skýra lagaheimild. Ef vafi leikur á um hvort tiltekið tilvik rúmist innan reglunnar ætti að leyfa borgurunum að njóta vafans og skýra regluna rúmt. Greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum falla undir hugtakið atvinnutekjur skv. skilgreiningu umræddrar orðskýringar. Öflun lífeyrisréttinda er beintengd atvinnu manna og almennt er litið á það sem svo, að greiðslur vinnuveitanda í lífeyrissjóð launþega séu endurgjald fyrir vinnu.

Greiðslur úr atvinnutengdum lífeyrissjóðum.

Í orðskýringu almannatryggingalaganna á hugtakinu atvinnutekjur er augljóst að greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum teljast atvinnutekjur. Þannig að ef aðeins er horft til skilgreiningar laganna á atvinnutekjum ætti ekki að skerða ellilífeyri vegna greiðslna úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum fyrr en þær, ásamt öðrum atvinnutekjum ellilífeyrisþega fara yfir kr. 2.400.000- á ári.

Hugtakið -Greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum- er skilgreint í orðskýringum, sem greiðslur sem byggjast á iðgjaldi skv. lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Hvorugt orðasambandið kemur annars staðar fyrir í tengslum við frítekjumörkin. Sú skilgreining getur því ekki ein og sér talist skýr lagaheimild og heimilað gagnályktun á þá vegu að lífeyrissjóðstekjur teljist ekki í skilningi laganna til atvinnutekna. Hér er um að ræða þrengra hugtak, sem nær aðeins til ákveðinna atvinnutekna eins og t.d. eftirlaun frá fyrirtækjum og atvinnuleysisbætur, en samkvæmt núverandi lagatúlkun stjórnvalda teljast þau endurgjöld til atvinnutekna.

Aðgreining frá öðrum atvinnutekjum.

Vel getur hugsast að í ákveðnum tilvikum þurfi að fjalla sérstaklega um lífeyrissjóðstekjur og að hugtakið myndi þá nýtast til að aðgreina þær tekjur frá öðrum atvinnutekjum. Þegar hins vegar fjallað er um atvinnutekjur verður að gera ráð fyrir því að verið sé að ræða um breiðara hugtak, sem nái um bæði lífeyrissjóðstekjur og aðrar tekjur sem falla undir orðskýringu laga um tekjuskatt.

Þröng túlkun frítekjumarks.

Það ætti ekki að túlka regluna um sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna þrengra en skilgreining laganna á atvinnutekjum gefur svigrúm til. Veigamiklar ástæður þarf til að réttlæta svo mikið frávik frá þeirri grundvallarreglu að lög beri að túlka skv. orðanna hljóðan. Það á að leyfa borgurunum að njóta vafans. Greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum rúmast innan skilgreiningar laganna á atvinnutekjum. Því er ekki hægt að réttlæta þrengri merkingu á hugtakinu atvinnutekjur en leiðir af orðanna hljóðan með þeim rökstuðningi að lögin skilgreina einnig greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum án þess þó að það hugtak sé notað í lögunum frekar.

Skemmri skírn lagaheimildar.

Ofangreint er ályktun frá lögskýranda, er ég hváði um óskýra (jafnvel ólöglega) heimild stjórnvalda við túlkun á atvinnutekjum og útreikning ellilífeyris.

Höfundur er ellilífeyrisþegi. 




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×