Tónlist

Ölvuðu Ís­lendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Spacestation hafa gefið út aðra plötu sína og halda tónleika í Austurbæjarbíói þar sem þeir lofa nóg af hávaða.
Spacestation hafa gefið út aðra plötu sína og halda tónleika í Austurbæjarbíói þar sem þeir lofa nóg af hávaða.

Rokkararnir í Spacestation gáfu nýverið út plötuna Who Killed Spacestation? og fóru í kjölfarið á túr um Evrópu. Þeir eru komnir aftur á klakann og halda á tónleika á föstudaginn þar sem þeir lofa hávaða og látum.

Rokkhljómsveitin Spacestation hefur verið starfandi síðan 2023, gáfu út fyrstu plötu sína í fyrra og fylgdu henni eftir með Who Killed Spacestation? sem kom út 10. september síðastliðinn. Af því tilefni halda þeir stórtónleika í Austurbæjarbíói á föstudaginn næstkomandi þar sem sígaretturokksveitin Skrattar mun einnig koma fram.

Strákarnir eru í góðri æfingu því þeir eru nýkomnir úr þriggja vikna löngu tónleikaferðalagi um Evrópu þar sem þeir komu fram á tónleikum og hátíðum víðs vegar um álfuna, meðal annars á Reeperbahn Festival í Hamborg og Waves Vienna í Vínarborg. 

Blaðamaður heyrði hljóðið í Björgólfi Jes Einarssyni, söngvara og frontmanni sveitarinnar, um plötuna og tónleikana á föstudaginn.

Þið voruð að gefa út plötu, hvað er um að vera á henni?

„Á henni má finna rokk, ról og alls konar annan hávaða sem við höfum verið með síðustu misseri. Í textunum er gólað um næturlífið, bömmera, ástina og jafnvel dauðann, eða kannski frekar upprisuna og þroskann sem henni fylgir. Það er sterkt þema á plötunni að yfirstíga djöfla og erfið tímabil sem hafa með ýmsum hætti hrjáð sögumanninn,“ segir Björgólfur.

Strákarnir vísi í Bítlana hér en tónlist þeirra er þó töluvert þyngri.

„Þessum sögum og textum er síðan pakkað inn í draumkennt og endurtekið gítarhakkl með skoppandi trommutakti, manískum bassalínum og lokkandi melódíum. Við köllum þetta oft að „hakkla“ eða „dróna shittið“, með öðrum orðum bara rokk og ról,“ bætir hann við.

Who Killes Spacestation? skeri sig dálítið frá fyrri útgáfu strákana.

„Við vitum betur hvað við viljum úr sándinu okkar núna en síðast. Tilfinningar okkar og rödd bandsins fá að flæða meira óþvingað. Við prófuðum líka allan andskotann við gerð plötunnar, alls konar skrítin hljóðfæri og brellur,“ segir Björgólfur.

„Okkur hefur aldrei liðið of þægilega innan einhverrar einnar heilagrar stefnu. Í staðinn þreifum við fyrir okkur. Á plötunni má heyra áhrif hvaðanæva að: síkadelískt rokk, post-pönk, britpopp, shoegaze og meira að segja post-rokk ef vel er hlustað, og svo margt fleira.“

Hver drap Spaceastation?

Sveitin er dauð ef marka má nafn plötunnar. Hvað á það að þýða?

„Hver eða hvað það var nákvæmlega sem drap Spacestation vitum við ekki, eða kannski vitum við það en viljum ekki segja. Andlegur þroski? Kannski er þetta bara einhver örvæntingarfull leið til að reyna að segja fólki að taka okkur alvarlega, hver veit? Við getum að minnsta kosti alls ekki tekið sjálfa okkur alvarlega,“ segir Björgólfur.

Platan og titill hennar snúist í kringum það að ganga í burtu frá brestum sínum og slæmum ávönum til að gera eitthvað af viti.

Geimfararnir eru í flippuðum gír.

„Við erum að skipta smá um gír, sérstaklega hvað tungumálanotkun varðar. Hið ástkæra ylhýra heyrist ekki eins mikið á Who Killed Spacestation? og margur hefði vonað. Það fyrsta sem fólk vill oft gera þegar hljómsveitir eða listamenn gera eitthvað öðruvísi er að lýsa þau dauð og ómerk,“ segir Björgólfur.

„Öllu gríni slepptu finnst okkur bara geðveikt gaman að gera tónlist og erum þakklátir fyrir að geta skipt um stefnu í staðinn fyrir að spóla bara í sandinum með sama hljóðið alla tíð. Kannski hefði verið betra að skíra plötuna bara Spacestation 2.0 en það verður að vera smá drama.“

Íslenskir „lads“ í Kristjaníu stóðu upp úr

Strákarnir fylgdu eftir plötunni með Evróputúr um Þýskalandi, Austurríki, Danmörku og Svíþjóð sem gekk eins og í sögu. Þar voru nokkur full hús og tókst sveitinni að selja upp vínylplöturnar sem þeir tóku með sér.

„Í svona stöðu getur líka oft verið gott að vera frá Íslandi. Þau éta það upp mörg hver á meginlandinu, en út af því að þetta er ekki fyrsti túrinn okkar höfum við líka náð að byggja upp ágætis hlustendahópa í nokkrum bæjum og borgum þarna ytra,“ segir Björgólfur.

„Giggið okkar í Kristjaníu í Köben stóð hvað mest upp úr. Það voru flestallt Danir en líka ágætis hópur af Íslendingum og á meðal þeirra var hópur af svona alvöru fullum íslenskum „lads“ sem gjörsamlega rifu upp stemninguna.“

Spacestation lauk nýverið við þriggja vikna tónleikaferðalag um Evrópu.

Tónleikar á föstudaginn, hverju á fólk von á?

„Hávaða og látum fyrst og fremst. Ég verð líka gólandi eitthvað í mækinn. En svo bara gleði líka. Það verður heitt og sveitt og dansað og svona. Við höfum aldrei fengið að spila þetta nýja efni allmennilega hérna heima og við erum spenntir að leyfa fólki að heyra,“ segir Björgólfur.

„Þessir tónleikar eru metnaðarfyllsta verkefni sem við höfum hent í til þessa og við ætlum að gera þá þess virði og hafa gaman að þessu. Eftir alla vinnuna sem fór í plötuna og þennan rúmlega þriggja vikna Evróputúr verður svo geggjað að koma heim með stæl og fagna með fólkinu.“

Tónleikarnir fara fram í Austurbæjarbíói klukkan 20 á föstudaginn og er hægt að næla sér í miða á Moment.is.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.