Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar 21. október 2026 10:17 Síðastliðin misseri hefur átt sér stað þörf opinber umræða um stöðu ræstingafólks. Rannsóknir sýna að hópurinn býr við erfið lífskilyrði og starfsaðstæður. Efling og fleiri stéttarfélög hafa greint frá tilvikum þar sem ræstingafólki hefur verið boðið upp á launalækkanir í stað kjarasamningsbundinna launahækkana, með því að skera niður tímana sem þeim eru greiddir fyrir verkin. Efling hélt fjölmennan félagsfund þann 5. mars 2025. þar sem ræstingafólki var sérstaklega boðið og fjallað ítarlega um stöðu þeirra. Fjölmiðlar greindu á síðasta ári frá sögu Andreinu Edwards, hugrakkrar ræstingakonu hjá fyrirtækinu Ræstitækni ehf. sem hrakin var úr vinnu í kjölfar þess að hafa rætt við vinnufélaga sína um kjarasamningsbundin réttindi. Hún þurfti að sækja rétt sinn fyrir dómi, þar sem fyrirtækið var loks dæmt til að greiða henni miskabætur. Sem betur fer hefur Efling ekki talað algjörlega fyrir daufum eyrum um málefni ræstingafólks og aðkomu hins opinbera að þeim. Í kjölfar ítrekaðra fundahalda og samskipta við forsætisráðherra, félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra á þessu og síðasta ári hafa nokkur umbótamál komist í farveg. Í síðustu viku kynnti fjármálaráðuneytið stórhertar kröfur til ræstingafyrirtækja sem sinna útboðnum verkum fyrir ríkið. Félagsmálaráðuneytið hefur í skoðun ásamt Vinnueftirlitinu hvernig megi koma í veg fyrir óhóflegar afkastakröfur í ræstingavinnu. Þá hefur Efling sett aukinn kraft í vettvangsathuganir, vinnustaðaeftirlit og samskipti við opinbera kaupendur að ræstingaþjónustu. Félagið hefur gert mælingar á ræstingaverkum á Landspítalanum, Háskóla Íslands og hjá sveitarfélögum auk þess að ræða beint við fjölda félagsfólks og afla trúnaðarmanna. Það er ánægjulegt að segja frá því að í mörgum tilvikum hefur komið fram einlægur vilji hjá verkkaupum til að heimila eftirlit og tryggja gagnsæi um launakjör og afkastakröfur ræstingafólks. Á þessu eru þó markverðar undantekningar, sem er tímabært að segja frá opinberlega. Sorglegasta dæmið, sem um leið vekur mestar áhyggjur, er sveitarfélagið Mosfellsbær þar sem ræstingafyrirtækið iClean fer með útseldar ræstingar. Um síðastliðin áramót tók iClean við ræstingum í byggingum bæjarins, að afloknu útboði þar sem fyrirtækið sem áður sinnti verkinu var undirboðið. Í apríl hafði Efling samband við fulltrúa bæjarins og óskaði eftir samvinnu um vinnustaðaheimsóknir, í þeim tilgangi að ganga úr skugga um að launakjör og afkastakröfur væru í samræmi við kjarasamninga. Hófst þá barátta við að fá viðbrögð frá fulltrúum bæjarins. Eftir tvo mánuði náðist sá áfangi að innkaupa- og rekstrarsérfræðingur bæjarins leyfði fulltrúum Eflingar að sækja sig heim ásamt lögmanni bæjarins. Þegar á fundinn var komið kom hins vegar í ljós að innkaupa- og rekstrarsérfræðingurinn var við það að ljúka störfum á næstu dögum og lögmaðurinn var fjarverandi án skýringa. Hafði félagið strax í kjölfarið samband við nýkjörinn bæjarstjóra, Hilmar Gunnarsson. Í ágústmánuði fékkst hann til að hitta fulltrúa Eflingar á fundi ásamt með sviðsstjóra mannauðs- og starfsumhverfis, þar sem fulltrúar Eflingar fluttu kynningu. Var þar jafnframt lögð fram ósk um að bærinn myndi nýta heimildir í verksamningi til þess að kalla eftir verklýsingum tiltekinna ræstingaverka, en slíkar verklýsingar eru nauðsynlegar til að hægt sé að meta afkastakröfu verkanna og þar með hvort ákvæði kjarasamninga séu virt. Þegar þetta er ritað hefur enn ekkert svar borist frá Mosfellsbæ við þeirri beiðni. Þann 2. október síðastliðinn fóru svo fulltrúar Eflingar og Fagfélaganna í vinnustaðaeftirlitsheimsókn að eigin frumkvæði á verkstaði í Mosfellsbæ, nánar tiltekið þrjá grunnskóla. Þegar á staðinn var komið hittu eftirlitsfulltrúar sex starfsmenn sem sinntu ræstingastörfum á vegum iClean. Enginn þeirra bar á sér vinnustaðaskírteini, en atvinnurekanda ber að tryggja að starfsmenn beri slíkt skírteini skv. lögum nr. 42 frá 2010 um eftirlit á vinnustöðum. Í einum grunnskólanna var við störf einstaklingur sem ekki vildi segja á sér deili og fór undan í flæmingi. Fram kom í síðari samskiptum við iClean að umræddur einstaklingur var ekki í ráðningarsambandi við fyrirtækið. Engu að síður bar hann á sér aðgangskort merkt skólanum og fyrirtækinu og virðist hafa haft óheftan aðgang að húsnæðinu. Ástæða er til að nefna að í verksamningi Mosfellsbæjar við iClean er krafa um að starfsmenn sem sinna ræstingum séu með hreint sakavottorð, en augljóslega er ekki hægt að framfylgja slíkri kröfu ef óskráðir einstaklingar sinna þar ólöglegri vinnu. Efling tilkynnti Mosfellsbæ í síðastliðinni viku um ofangreind brot á lögum nr. 42/2010, ólöglega vinnu og aðgang óskráðra einstaklinga að húsnæði bæjarins. Þannig stuðluðu Efling og Fagfélögin að réttri framkvæmd þeirrar ræstingaþjónustu sem Mosfellsbær borgar fyrir og lögðu jafnframt af mörkum til að lagfæra öryggisbrest í aðgengi að skólahúsnæði bæjarins. Ekki uppskar Efling þó þakklæti frá fulltrúum bæjarins, heldur móttók póst – frá enn einum embættismanninum, að þessu sinni titlaður sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs – þar sem þurrlega var tilkynnt um að starfsmaður Eflingar myndi heyra frá lögmanni bæjarins. Í gegnum samskipti Eflingar við Mosfellsbæ hafa fulltrúar bæjarins mestmegnis sýnt félaginu áhugaleysi, hroka og fálæti. Félagið hefur lagt fram þá einföldu ósk að bærinn nýti þegar umsamin ákvæði í verksamningi til að tryggja að réttindi verkafólks séu virt. Í stað þess að bregðast vingjarnlega við þessari ósk hafa erindi félagsins gengið eins og heit kartafla milli forsvarsmanna sem vísa hver á annan milli þess sem þeir láta af störfum og hunsa mótteknar beiðnir. Saga samskipta Eflingar við Mosfellsbæ er saga um vinnubrögð sem ekki eiga að líðast. Að standa vörð um lögbundin réttindi þeirra sem eru útsettastir fyrir réttindabrotum á íslenskum vinnumarkaði á að vera kappsmál allra. Rétt framkvæmd á þjónustusamningum opinberra aðila við verktaka er sjálfsögð krafa skattgreiðanda og þjónustuþega. Svo virðist sem Mosfellsbær sé mótfallinn eðlilegu aðhaldi og gagnsæi í innkaupum sínum, jafnvel með einföldustu beitingu þegar umsaminna heimilda í verksamningum. Þá virðist bærinn engan áhuga hafa á því að tryggja að verkafólk sem sinnir störfum fyrir bæinn í gegnum verktaka njóti lögbundinna lágmarkskjara. Ræstingafólk, sem vinnur baki brotnu við að halda leikskólum, grunnskólum og bókasöfnum bæjarins hreinum, er bæjaryfirvöldum ekki ofarlega í huga. Samstarfsbeiðnir og ábendingar frá stærsta stéttarfélagi íslensks verkafólks kveikja ekki áhuga, jafnvel þegar fyrir liggja niðurstöður eftirlitsheimsókna sem sýna fram á verulega óreglu. Það er ástæða fyrir útsvarsgreiðendur og þjónustuþega Mosfellsbæjar að hafa áhyggjur af meðferð bæjarins á almannafé þegar kemur að innkaupum á ræstingaþjónustu. Þær áhyggjur ættu einnig að ná til almennrar festu og ábyrgðarkenndar í stjórnsýslu og meðal kjörinnar forystu bæjarins. Ég hvet íbúa Mosfellsbæjar til að þrýsta á sína kjörnu fulltrúa og embættismenn að gera betur. Höfundur er formaður Eflingar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sólveig Anna Jónsdóttir Kjaramál Mosfellsbær Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun