„Hann kvartar yfir öllu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 19. október 2026 15:45 Bruno Fernandes og stælar hans innan vallar voru til umræðunni í Messunni. Eiður Smári veltir því upp hvort United-menn séu komnir með leið á Portúgalanum. Getty/Sýn Eru stuðningsmenn Manchester United komnir með nóg af stanslausu tuði stjörnuleikmannsins Bruno Fernandes? Eiður Smári Guðjohnsen velti því upp í Messunni.
Manchester United hefur aðeins fengið sjö stig í fyrstu sjö leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Liðið gerði 1-1 jafntefli við Leeds þar sem Bruno Fernandes, sem hefur verið besti leikmaður liðsins undanfarin ár, átti ekkert sérstakan leik. Líkamstjáning hans gaf þá til kynna að hann nyti sín ekki mjög á vellinum og hann tuðaði yfir mörgu, líkt og iðulega er hjá Portúgalanum. Klippa: „Eru menn bara orðnir aðeins þreyttir á honum?“ Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrverandi leikmaður Chelsea, var spurður að því í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport hvernig hann læsi í líkamstjáningu Fernandes á vellinum. „Ég veit ekki með þau sem eru nýbyrjuð að fylgjast með United og ensku úrvalsdeildinni. Er þetta eitthvað sem kemur okkur á óvart sem eru búin að fylgjast með þessu undanfarin ár?“ spyr Eiður Smári. „Hann er alltaf svona. Hann kvartar yfir öllu, að hann fái ekki sína aukaspyrnu eða gefi frá sér aukaspyrnuna. Hann kvartar alltaf. Við vitum að hann hefur alltaf stigið upp í sínu hlutverki hjá United undanfarin ár hvað tölfræði varðar sem einstaklingur,“ segir Eiður og bætir við: „Ég er meira farinn að hugsa: Eru menn bara orðnir aðeins þreyttir á honum? Ekki bara við sem erum hérna að horfa á hann hlutlaus. Meira að segja United-fólk, þetta hlýtur að vera bara: Heyrðu, hann neglir einn niður, veit að hann er að fá gult spjald.“ „Hann er hugsanlega að ögra dómaranum í það að gefa sér annað gult spjald í þessum leik. Og það er svo mikið í gangi í kringum hann, hvort að menn séu ekki bara orðnir aðeins þreyttir á þessari athygli sem að hann þarf inni á vellinum,“ „Því þegar hann er upp á sitt besta er algjör unun að horfa á hann spila fótbolta, en þegar hann er það ekki þá er svo mikil athygli sem að fer á hann í alls konar sem að skiptir leiknum engu máli,“ segir Eiður Smári. Umræðuna má sjá í spilaranum.
Manchester United Enski boltinn Messan Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fleiri fréttir Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Sjá meira