Handbolti

Bein út­sending: Kemur Snorri Steinn á ó­vart í landsliðsvali sínu?

Aron Guðmundsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, opinberar landsliðsval sitt í dag á blaðamannafundi sem sýnt verður beint frá hér á Vísi. 
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, opinberar landsliðsval sitt í dag á blaðamannafundi sem sýnt verður beint frá hér á Vísi.  Vísir/Vilhelm

HSÍ hefur boðað til blaðamannafundar klukkan korter yfir tólf þar sem að Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, mun tilkynna landsliðshóp sinn fyrir komandi leiki í undankeppni EM 2028. 

HSÍ verður með beint streymi frá fundinum sem sjá má hér á Vísi en fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Arion Banka. 

Framundan eru fyrstu tveir leikir Íslands í undankeppni EM. Sá fyrri fer fram hér heima þann 4. nóvember næstkomandi á móti Úkraínu. Seinni leikurinn er gegn Eistlandi ytra þann 8. nóvember. 

Spenna ríkir fyrir vali Snorra Steins sem og íslenska landsliðinu en það styttist óðum í að næsta stórmót, HM í Þýskalandi, hefjist. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×