Handbolti

Viktor öflugur í öruggum sigri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar enduðu í 1. sæti B-riðils Meistaradeildar Evrópu. Þeir fara beint í 8-liða úrslitin ásamt Magdeburg.
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar enduðu í 1. sæti B-riðils Meistaradeildar Evrópu. Þeir fara beint í 8-liða úrslitin ásamt Magdeburg. EPA/Johan Nilsson

Viktor Gísli Hallgrímsson er kominn á fullt eftir veikindi og var frábær í marki Barcelona í öruggum 40-33 sigri á Villa de Aranda í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Barcelona náði forystunni snemma í leik dagsins og hélt henni allt til loka. Liðið raðaði inn mörkum og vann sjö marka sigur, 40-33.

Viktor Gísli spilaði allan leikinn í marki Barcelona og varði 18 skot. Hann var með markvörslu upp á 35,3 prósent.

Þá skoraði Janus Daði Smárason fjögur mörk fyrir Barcelona í leiknum.

Börsungar eru með fullt hús eftir þrjá leiki en hafa spilað heldur færri leiki en andstæðingar sínir í deildinni. Atlético Valladolid og Bidasoa eru á toppi deildarinnar með fullt hús eftir fimm leiki, tíu stig. Barcelona er í fimmta sæti og hefur eins og áður segir aðeins spilað þrjá leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×