Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Aron Guðmundsson skrifar 16. október 2026 10:00 Þorleifur Þorleifsson, Marlena Radziszewska og Elísa Kristinsdóttir hlaupa af stað á síðasta heimsmeistaramóti Viktor Freyr Heimsmeistaramótið í Bakgarðshlaupum hefst klukkan tólf á morgun og íslenska landsliðið mun þurfa hafa fyrir hlutunum í rigningu og roki í Elliðaárdalnum hér heima. Stressið er farið úr Íslandsmethafanum sem hefur ákveðið að svekkja sig ekki á því sem hann getur ekki breytt. „
Það er rosa góður andi, allir mjög peppaðir í liðinu. En það sem fólk er aðallega að spá í er bara veðrið. Maður liggur yfir veðurspám og fólk er svona að deila bestu spánni sín á milli,“ segir Þorleifur landsliðsmaður og Íslandsmethafi í samtali við Vísi. Segja má að aðstæður verði krefjandi fyrir okkar landsliðsfólk um helgina. Veðrið verður skaplegt fyrstu klukkutímana en um miðjan dag á morgun tekur að hvessa og rigna. Í raun ömurlegu veðri spáð alveg fram á mánudag. Þetta lítur nú ekkert eitthvað svakalega vel út fyrir helgina? „Nei, og svona mesta stressið núna er hvað maður á að taka með mikið af fötum. Í rauninni bara að vera með öll föt sem maður á. Ég er búinn að pakka þessu öllu niður, við verðum að skipta reglulega, þetta verður bara gaman.“ Rigningu fylgir vesen Hlaupið fer af stað klukkan tólf á morgun og það áhugaverða við það er að landsliðin 69 verða ræst út á sama tíma en hvert í sínu landi. „Við fáum flott veður í byrjun þannig að við getum stillt okkur upp fyrir nokkrar flottar myndir en svo held ég að það skipti engu máli hvaða spá þú skoðar. Það mun vera rigning og það mun vera rok. Við losnum ekkert við það. En ég er ekkert rosa hræddur við að hlaupa í rigningu.“ Hlaupararnir sem skipa landslið Íslands í bakgarðshlaupum sem hleypur af stað á morgun „Maður mun blotna. Við þurfum að skipta ört um föt. Það er eiginlega meira vesenið. Mér finnst í rauninni ekkert mál að hlaupa í góðum regnkápujakka í rigningunni en að skipta um blaut föt á milli hringja og eitthvað svona. Það er eina sem ég kvíði svona mest fyrir, verður mesta vesenið sko.“ Af því að það fer þá tími í það milli hringja sem annars væri kannski bara frekar í hvíld? „Nákvæmlega. Það fer dýrmætur tími í þetta og bara með því að vera alltaf í blautum skóm eykst hættan á öllum blöðrum og nuddsárum. Það þarf að taka það inn í myndina. Er þetta ekki ósanngjarnt? Dregur þetta ekkert úr manni? Nennir maður, nennir maður að fara út í svona? „Þegar maður var að skoða veðurspána fyrst í byrjun vikunnar var maður svona: „Oh, æi, þetta verður eitthvað hálfleiðinlegt.“ En svo einhvern veginn núna erum við búin að vera að deila á milli okkar ráðum. Hvað hver ætlar til að mynda að gera, hvaða búnað fólk er að taka með sér. Ég er byrjaður að hlakka til. Ég er búinn að hugsa svo mikið um þetta og er bara tilbúinn.“ Einhverjir myndu segja að það væri nú ekki sanngjarnt fyrir íslenska liðið að keppa í þessum aðstæðum þegar einhverjir aðrir, Belgarnir eða hver sem er, eru kannski að keppa í sól og logni. „Já, það er alveg rétt. Það er mismunandi veður og aðstæður í þessum löndum. Ég var nú að hlusta á liðsstjóra í öðru landi tala um að þeir hefðu nú ekkert áhyggjur af veðrinu. Áhyggjurnar hjá þeim kæmu ef hitastigið færi yfir 40 gráður. Það segir okkur að þær eru mismunandi. Fyrir fjórum árum var keppni stoppuð í Finnlandi. Þá var svo mikið óveður að rafmagnslínur slitnuðu og rafmagnsstaurar brotnuðu.“ Þetta hlýtur að hafa áhrif á það hversu langt þið getið hlaupið eða hvað, það verður bara að koma í ljós eða hvað? „Það kemur auðvitað bara í ljós. Það sem er svolítið mikilvægt að hugsa er hverju maður getur sjálfur stjórnað. Ég náttúrulega stjórna ekki veðrinu en ég get undirbúið mig undir það. Út frá veðrinu munum við kannski fara færri hringi en við öll í liðinu erum að hlaupa í sömu aðstæðum. Sýnt verður beint frá heimsmeistaramóti landsliða í Bakgarðshlaupum á Vísi. Hlaupið hefst klukkan tólf á morgun.
Bakgarðshlaup Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Fótbolti í fárviðri og lausir miðar á HM Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Tætir í sig „siðferðislega óréttlætanlega“ ákvörðun Formúlu 1 Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Bjarni Jó hættur „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar á Hlíðarenda og í Kópavogi Rekinn frá Stjörnunni Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar „Við fórum að spila alvöru körfubolta“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Sjá meira