„Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 15. október 2026 22:03 Borche Ilievski fer yfir málin. Vísir/Daníel „Ég ætla að reyna að einbeita mér að því jákvæða,“ sagði Borche Ilievski, þjálfari ÍR, eftir þungt tap hans manna gegn Álftanesi í 2. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld.
ÍR-ingar máttu þola 31 stigs tap á heimavelli í kvöld, eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik. Lokatölur 88-119. „Ég ætla að reyna að einbeita mér að því jákvæða, en við þurfum líka að horfast í augu við það neikvæða. Því miður náðum við ekki að halda út og finna lausnir gegn aggressívri vörn Álftnesinga, en við munum vinna í því. Liðið mitt þarf að læra mikið af þessum leik, sérstaklega hvernig á að halda einbeitingu,“ sagði Borche í leikslok. „Við náðum að minnka niður í tvö stig undir lok fyrri hálfleiks, en svo gleymum við okkur í hálfa mínútu og Álftanes refsar okkur með 8-0 kafla þannig að við förum inn í hálfleikinn í stöðunni 52-60. Þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða og greina. Við vitum að í hvert skipti sem þú missir einbeitinguna þá er þér refsað. Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur með sinn hóp og sinn leik og allt. Þeir eru með mikla orku og skoruðu flest sín stig vegna þess að þeir voru með mikla orku. Þeir eru með gott lið og við þurfum að leggja hart að okkur til að komast á þetta stig.“ „Það er enginn tími til að svekkja sig núna. Við þurfum að einbeita okkur að því jákvæða og fara inn í næstu umferð með jákvætt hugarfar.“ Þrátt fyrir að vilja einbeita sér að því jákvæða var ekki annað hægt en að minna Borche á það neikvæða úr leik hans manna. ÍR-ingar voru með undir 50 prósent vítanýtingu og 20 tapaða bolta sem gáfu Álftnesingum 29 auðveld stig. „Ég hef meiri áhyggjur af vítanýtingunni en töpuðu boltunum því þetta er annar leikurinn í röð sem þetta gerist. Svo gerði Álftanes allt erfitt fyrir okkur. Hvort sem það var að við ætluðum að troða, eða ná í auðvelt stig undir körfunni þá komu þeir alltaf með góð brot. Þeir eru með breiðan hóp sem leyfir þeim að spila svona og við urðum óöruggir og byrjuðum að klikka,“ sagði Borche. „Það var svona sem þeir brutu upp taktinn okkar, en við þurfum líka að horfast í augu við það sem við gerðum illa. Við megum ekki tapa svona mörgum boltum til að geta verið í betri stöðu í leiknum, sérstaklega í seinni hálfleik.“ Að lokum fór Borche stuttlega yfir næsta leik liðsins, þar sem ÍR-ingar heimsækja Hött austur á land. „Höttur er með mjög gott lið og með mjög gott jafnvægi á sínu liði. ÞEir fengu líka svona skell á móti Álftanesi í fyrstu umferð, en það sem ég hef séð frá þeim þá eru þeir með mjög gott jafnvægi í sínu liði. Þeir eru með góða menn í öllum stöðum í bland við reynslubolta. Þetta verður erfiður leikur, en við fórum austur og mættum Sindra í fyrstu umferð og gerðum það vel. Ef við nálgumst næsta leik eins og við gerðum á móti Sindra þá hef ég fulla trú á því að við sækjum sigur,“ sagði Borche að lokum.
Bónus-deild karla ÍR UMF Álftanes Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bo Johansson er látinn Fótbolti Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Körfubolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Sjá meira