Fótbolti

Leyni­legt ráða­brugg gæti ógnað endur­kjöri Infantino

Aron Guðmundsson skrifar
Sem stendur er fátt sem virðist ætla koma í veg fyrir endurkjör Infantino. Leynilegt ráðabrugg um mögulegan mótframbjóðanda virðist hins vegar vera virkt og hafa nöfn Luis Figo og Arséne Wenger borið á góma í umræðunni.
Sem stendur er fátt sem virðist ætla koma í veg fyrir endurkjör Infantino. Leynilegt ráðabrugg um mögulegan mótframbjóðanda virðist hins vegar vera virkt og hafa nöfn Luis Figo og Arséne Wenger borið á góma í umræðunni.

Óvæntur frambjóðandi gæti boðið sig fram til forseta FIFA og ógnað endurkjöri hins umdeilda Gianni Infantino. 

Frá þessu greinir The Telegraph í dag en miðillinn hefur það eftir tveimur háttsettum mönnum innan knattspyrnuhreyfingarinnar í Evrópu að á bakvið tjöldin eigi sér stað leynilegar þreifingar um að tefla fram trúverðugum frambjóðanda sem geti skákað Infantino. 

Sem stendur virðist fátt geta komið í veg fyrir endurkjör forsetans þrátt fyrir að hann hafi verið undir mikilli pressu og fengið á sig vantraustsyfirlýsingar eftir tilraun til þess að selja einkafjárfestum hlut í innviðum FIFA. 

Stjórn FIFA fundar í dag en samkvæmt The Telegraph er því haldið kyrfilega leyndu hvaða einstaklingar það eru sem mátaðir eru við forsetaframboð. Það sé of mikið undir.

Vel þekktir menn innan knattspyrnuhreyfingarinnar hafa þó verið orðaðir við framboð, meðal annars portúgalska knattspyrnugoðsögnin Luis Figo sem og Arséne Wenger.

Framboðsfrestur rennur út í nóvember en þing FIFA fer fram í mars á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×