Fótbolti

Ingi­björg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“

Sindri Sverrisson skrifar
Telma Ívarsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir afhentu Ingibjörgu skemmtilega landsliðssamfellu með númeri Ingibjargar.
Telma Ívarsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir afhentu Ingibjörgu skemmtilega landsliðssamfellu með númeri Ingibjargar. Instagram/@ingibjorg11

Vinkonur Ingibjargar Sigurðardóttur í íslenska fótboltalandsliðinu komu henni skemmtilega á óvart nú þegar hún er komin sex mánuði á leið með sitt fyrsta barn.

Ingibjörg er leikmaður Freiburg í Þýskalandi og segir í færslu á Instagram að það sé erfitt að búa erlendis, í burtu frá fjölskyldu og vinum, á meðgöngunni.

Þess vegna hafi frí heima á Íslandi um síðustu helgi gert henni afar gott og ástin og umhyggjan sem hún fann fyrir hreinlega gert hana orðlausa.

Ingibjörg á sinn þátt í því að Ísland skuli nú vera aðeins einvígi við Portúgal frá því að komast á HM í fyrsta sinn. Vinkonur hennar úr landsliðinu áttu ekki í neinum vandræðum með að slá út Króatíu, samtals 9-0, en eiga mun erfiðara verkefni fyrir höndum í lok nóvember og byrjun desember gegn Portúgölum.

Ingibjörg fór og hitti liðsfélaga sína í landsleikjatörninni og þær glöddu hana með skemmtilegri gjöf, eins konar landsliðssamfellu handa syninum sem væntanlegur er í heiminn. Samfellan var að sjálfsögðu merkt „MAMMA“ með númerinu 6 aftan á en Ingibjörg, sem leikið hefur 86 A-landsleiki, spilar í treyju númer 6.

En það voru ekki bara vinkonurnar úr landsliðinu sem glöddu Ingibjörgu hér á landi því hún fékk líka óvænt steypiboð (e. baby shower) frá fleirum af sínum nánustu.

„Mamma hans er ótrúlega þakklát fyrir þær“

„Orðlaus eftir algjörlega einstaka helgi heima 🥹🩵 Að finna alla ástina sem litla fjölskyldan okkar fékk á Íslandi gaf mér svo mikinn kraft fyrir þennan síðasta (!!) þriðjung meðgöngunnar.

Að búa erlendis á meðgöngunni og hafa ekki fjölskylduna og vinina í kringum mig hefur stundum verið einmanalegt sem gerði þessa helgi enn sérstakari. 🤍

Og hversu heppinn er þessi litli strákur að eiga svona margar sterkar konur sem fyrirmyndir?! Mamma hans er ótrúlega þakklát fyrir þær, fyrir allar frábæru fyrirmyndirnar sem hún á í sínu eigin lífi og fyrir konurnar sem ruddu brautina á undan henni (sjá síðustu myndina),“ skrifaði Ingibjörg. Þar vísaði hún til myndar af landsliðskonunum sem komu Íslandi í fyrsta sinn á stórmót, á EM 2009, en þær voru heiðraðar í hálfleik á leiknum við Króatíu á Laugardalsvelli á þriðjudaginn.


Tengdar fréttir

„Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“

Gærkvöldið verður án efa eftirminnilegt fyrir Glódísi Perlu Viggósdóttur. Ekki nóg með að Ísland hafi unnið 5-0 sigur á Króatíu heldur spilaði fyrirliðinn sinn 150. leik í íslensku landsliðstreyjunni.

Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fagnaði vel á Laugardalsvelli í gærkvöld eftir 5-0 stórsigur gegn Króatíu og samtals 9-0 sigur í einvígi liðanna í HM-umspilinu. Ljósmyndarinn Anton Brink náði frábærum myndum af stemningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×