Handbolti

Á­tján ára með fjór­tán mörk og Haukar fljúga á­fram

Sindri Sverrisson skrifar
Freyr Aronsson fór á kostum í kvöld.
Freyr Aronsson fór á kostum í kvöld. vísir/Diego

Freyr Aronsson hefur farið á kostum með Haukum á leiktíðinni og átti ótrúlegan leik gegn Selfossi í kvöld, í 31-22 sigri í Olís-deildinni í handbolta.

Freyr, sem varð 18 ára í sumar, skoraði heil 14 mörk í leiknum úr aðeins 18 skotum en þar af voru fimm mörk úr sex skotum af vítalínunni. Hann fékk 10 í sóknareinkunn hjá HB Statz eftir þessa frammistöðu.

Haukar hafa unnið alla leiki sína á tímabilinu og þeir voru komnir í 17-11 í hálfleik í kvöld. Selfyssingar náðu þó að minnka muninn í tvö mörk, 20-18, en þá komu þrjú mörk Hauka í röð og þeir unnu á endanum öruggan sigur.

Haukar eru því með 12 stig á toppnum, þremur stigum á undan næsta liði sem er Afturelding og fjórum á undan KA sem á leik til góða við Stjörnuna á morgun.

Selfyssingar bíða enn eftir sínum fyrsta sigri á tímabilinu en eru með eitt stig á botni deildarinnar. Tryggvi Sigurberg Traustason var þeirra markahæstur í kvöld með sjö mörk úr þrettán skotum.

Grétar Ari Guðjónsson var öflugur í marki Hauka og varði 12 af 33 skotum eða 36%. Á eftir Frey var Skarphéðinn Ívar Einarsson næstmarkahæstur með fimm mörk úr átta skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×