Lífið

Palli og Sigga í suð­rænni afmælissveiflu

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Páll Óskar, Sigga Beinteins, Sigga Klingenberg og ýmsi aðrir skemmtu gestum á 26 ára afmæli Tapasbarsins.
Páll Óskar, Sigga Beinteins, Sigga Klingenberg og ýmsi aðrir skemmtu gestum á 26 ára afmæli Tapasbarsins. Ari Páll Karlsson

Góðir gestir nutu tapasveislu og skemmtidagskrár á 26 ára afmæli Tapasbarsins. Páll Óskar, Sigga Beinteins og Emmsjé komu fólki í afmælisgírinn og svo skemmtu Sigga Kling, Blaðrarinn og Sirkus Íslands fólki með óvæntum uppátækjum.

Tapasbarinn fagnaði 26 ára afmæli þann 7. október síðastliðinn og hélt af því tilefni stóra veislu þar sem fjöldi góðra gesta fagnaði tímamótunum. Gestir nutu þar góðra tapasrétta og fjölbreyttrar skemmtidagskrár þar sem tónlist, sirkus og óvænt uppátæki settu svip sinn á veisluna.

Páll Óskar, Sigga Beinteins og Emmsjé Gauti sáu um að koma gestum í afmælisgírinn, sungu afmælissönginn og fleiri lög við mikla gleði viðstaddra. Einnig komu fram Sigga Klingenberg, Blaðrarinn, Sirkus Íslands og Pilkinton Props.

Fjöldi þekktra andlita tók þátt í gleðinni, meðal gesta voru leikhópur Moulin Rouge, Sunneva Einarsdóttir, Birgitta Líf Björnsdóttir, Patrekur Jaime og systkinin Aron Mola og Birta Líf Ólafsdóttir ásamt fjölmörgum öðrum.

Ljósmyndarinn Ari Páll Karlsson fangaði stemminguna á mynd.

Ýmsar furðuverur stigu á stokk.Ari Páll Karlsson

Sigga Kling skemmti gestum.Ari Páll Karlsson

Svakalegar skvísur.Ari Páll Karlsson

Slegið á trumbu.

Palli tryllti lýðinn.Ari Páll Karlsson

Emmsjé Gauti fékk fólk til að lyfta höndum upp í loft.Ari Páll Karlsson

Lee Nelson kom frá Sirkusi Íslands.Ari Páll Karlsson

Leikhópur Moulin Rouge skálaði.Ari Páll Karlsson

Dansarar stigu á stokk.Ari Páll Karlsson

Blaðrarinn bjó til blöðrulist fyrir gesti.Ari Páll Karlsson

Starfsmenn Rauðu myllunnar í hörkufílíng.Ari Páll Karlsson

Sigga Beinteins tók í míkrafóninn.Ari Páll Karlsson

Birta Líf, Sunneva Einars, Aron Mola, Benedikt Bjarnason, Patrekur Jaime og Birgitta Líf.Ari Páll Karlsson

Sigga Kling og Palli alltaf flott.Ari Páll Karlsson

Sigga Beinteins í stuði.Ari Páll Karlsson

Lee er ansi fimur og lappalangur.Ari Páll Karlsson

Þessar voru í suðrænu skapi.Ari Páll Karlsson

Gribos greip í gítarinn.Ari Páll Karlsson

Esther Talía og Hildur Vala glæsilegar sem endranær.Ari Páll Karlsson

Mikael Kaaber og Ernesto Camilo.Ari Páll Karlsson

Birgitta Líf og Patrekur JaimeAri Páll Karlsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.