Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 12. október 2026 06:57 Donald Trump hefur verið mjög gagnrýnin á Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, um helgina og sakað hann meðal annars um að standa í vegi friðar. AP/Alex Brandon Bandaríkjamenn eru sagðir hafa hótað því að hætta að deila upplýsingum með Úkraínumönnum og að meina ríkjum Evrópu að kaupa vopn og flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínu. Það verði gert ef Úkraínumenn hætti ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi.
Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mest öllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínumanna frá Bandaríkjunum síðan þá. Það hefur meðal annars verið gert í gegnum NATO-verkefni sem kallast PURL og hefur Ísland tekið þátt í því. Bandaríkjamenn hafa sömuleiðis deilt upplýsingum um undirbúning Rússa fyrir árásir í Úkraínu, hreyfingar rússneskra sveita á víglínunni og möguleg skotmörk í Rússlandi, svo eitthvað sé nefnt, með Úkraínumönnum. Sjá einnig: Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Um helgina tilkynntu bandarískir embættismenn kollegum sínum í Úkraínu að þessu yrði mögulega hætt, ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnvið í Rússlandi. Var það eftir að Trump opinberaði að Bandaríkin ætluðu að kaupa díselolíu frá Rússlandi. Hópur bandarískra öldungadeildarþingmanna segir að þau kaup yrðu líklega brot á lögum og hafa kallað eftir stefnubreytingu. Trump hefur um helgina farið hart fram gegn Úkraínu og Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, og sakað hann og Úkraínumenn meðal annars um að bera ábyrgð á háu eldsneytisverði í Bandaríkjunum og heiminum. Þá lýsti Trump því yfir að ráðamenn í bæði Rússlandi og Úkraínu hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði í hvoru landi fyrir sig. Ekkert slíkt samkomulag lá fyrir en þetta er í annað sinn sem Trump segir ósatt um að samið hafi verið um vopnahlé af þessu tagi. Sjá einnig: Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Financial Times sagði frá því í gær að Bandaríkjamenn hefðu hótað því að hætta að deila upplýsingum með Úkraínumönnum og að hætta að selja áðurnefnd flugskeyti, sem eru Úkraínumönnum gífurlega mikilvæg þegar kemur að því að verjast skotflaugaárásum Rússa. Aðrir fjölmiðar hafa í kjölfarið sagt sambærilegar fréttir. Þingmenn segja Trump að hætta við Hópur öldungadeildarþingmanna úr báðum flokkum Bandaríkjanna segja að Donald Trump eigi að láta af ætlun sinni að kaupa díselolíu frá Rússlandi. Ekkert samráð um kaupin hafi verið haft við þingið, sem lög segi til um að forsetaembættið eigi að gera. Þá segja þingmennirnir að Bandaríkin ættu ekki að veita Vladimír Pútín „fjárhagslega líflínu“ á meðan hann haldi áfram mannskæðum árásum á úkraínska borgara. Þess vegna þurfi ríkisstjórn Trumps að breyta um stefnu hið snarasta. Sjá einnig: Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Undir þessa yfirlýsingu skrifa fjórir öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins og tveir Demókratar. Repúblikanarnir eru Susan Colins frá Maine, Lisa Mukrowski frá Alaska, Thom Tillis frá Norður-Karólínu og John Curtis frá Utah. Demókratarnir tveir eru þeir Jeanne Shahenn frá New Hampshire og Richard Blumenthal frá Connecticut. Trump kom flestum á óvart þegar hann tilkynnti á samfélagsmiðlum á föstudaginn að hann hefði gert samkomulag við Pútín um að kaupa rúmlega 300 þúsund tonna af díselolíu frá Rússlandi, hið snarasta. Hálf milljón tonna myndu svo fylgja í næsta mánuði og önnur milljón í kjölfarið. Seinna meir myndu svo þrjár milljónir tonna bætast við. Tillis sagði í sjónvarpsviðtali sem hann fór í í gær að líkur væru á því að með olíukaupunum frá Rússlandi væri Trump að brjóta lög sem bandaríska þingið samþykkti árið 2022. Þau lög banna kaup á olíu frá Rússlandi. Tiltölulega stutt er síðan bandarískir þingmenn samþykktu lagafrumvarp kennt við þingmanninn heitna Lindsay Grahama, sem snerist um að veita Trump heimild til að herða refsiaðgerðir gegn Rússlandi og þá sérstaklega gagnvart sölu á olíuafurðum og jarðgasi. Trump gæti þannig beitt ríki sem kaupa olíu og gas af Rússlandi umfangsmiklum tollum en með þessu vildu þingmenn draga úr peningaflæðinu til Rússlands, þar sem þessi sala er helsta tekjulind ríkisins og er notuð til að fjármagna stríðsreksturinn gegn Úkraínu. Forsetinn bandaríski hefur ekki beitt þessum heimildum sínum. Trump hefur ítrekað hótað því að beita Rússa miklum refsiaðgerðum til að reyna að þvinga þá að samningaborðinu en hefur hingað til ekki staðið við stóru orðin. Sjá einnig: Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Trump hefur að undanförnu reynt að kenna árásum Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi um hátt eldsneytisverð í Bandaríkjunum. Það háa verð þykir líklegt til að koma verulega niður á Repúblikönum í þingkosningunum í næsta mánuði og vill Trump lækka verðið. AP-fréttaveitan hefur eftir sérfræðingum í orkumálum í Bandaríkjunum að kaupin á díselolíu frá Rússlandi muni líklegast ekki lækka verð á dælunum.
Bandaríkin Donald Trump Rússland Vladimír Pútín Bensín og olía Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður NATO Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Fleiri fréttir Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Sjá meira