Fótbolti

Belgar á flugi undir stjórn Elísa­betar

Aron Guðmundsson skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir, landsliðsþjálfari Belgíu
Elísabet Gunnarsdóttir, landsliðsþjálfari Belgíu Vísir/Getty

Belgíska kvennalandsliðið í fótbolta, sem spilar undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur, vann mikilvægan sigur gegn Póllandi í fyrri leik liðanna í umspili fyrir HM 2027 í Brasilíu í kvöld.

þUm fyrri leik liðanna í undanúrslitaeinvígi umspilsins var að ræða en það var Elena Dhont sem skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. 

Bæði lið klúðruðu vítaspyrnu í leiknum en það var mark Dhont sem skildi liðin að í lok kvölds. 

Belgía heldur því með eins marks forystu inn í seinni leik liðanna sem fram fer í Póllandi í næstu viku.

Belgíska landsliðið á flottu skriði undir stjórn Elísabetar. Þetta var níundi leikurinn í röð sem liðið spilar án þess að tapa. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×