Viðskipti innlent

Ís­lands­banki varar við svikasímtölum

Atli Ísleifsson skrifar
Höfuðstöðvar Íslandsbanka í Kópavogi.
Höfuðstöðvar Íslandsbanka í Kópavogi. Vísir/Vilhelm

Íslandsbanka hafa borist tilkynningar um svikatilraunir þar sem hringt er í viðskiptavini bankans og hringjendur gefa sig út fyrir að starfa hjá bankanum.

Frá þessu segir í tilkynningu frá bankanum. Þar segir að Íslandsbanki vari við þessum símtölum og hvetji viðskiptavini til að samþykkja ekki óvæntar beiðnir um auðkenningu með rafrænum skilríkjum.

„Í símtölunum er því haldið fram að grunsamleg virkni eða innskráning hafi átt sér stað í netbanka viðskiptavinar. Viðkomandi er í kjölfarið beðinn um að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.

Íslandsbanki hvetur viðskiptavini sem fá slík símtöl til að leggja á og hafa samband við bankann í síma 440 4000 ef þeir eru í vafa um hvort símtalið sé raunverulega frá bankanum,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×