Innlent

Lög­reglan leitar upp­lýsinga um rispaða bíla

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Lögreglan rannsakar málið.
Lögreglan rannsakar málið. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til fólks um upplýsingar vegna skemmdarverka í Vesturbæ Reykjavíkur. Þrír bílar voru rispaðir.

Þrjár tilkynningar bárust í gær og í fyrradag um skemmdarverk samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.

„Bifreiðarnar voru kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Flyðrugranda, Hagamel og Keilugranda þegar verknaðurinn átti sér stað. Þar var á ferðinni skemmdarvargur (eða skemmdarvargar) sem rispaði allar bifreiðarnar með lykli eða einhvers konar áhaldi - svo mikið tjón hlaust af,“ segir í tilkynningunni.

Fólki sem kann að búa yfir upplýsingum um málið er bent á að hringja í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á gudmundur.petur@lrh.is. Lögreglan óskar sér í lagi eftir upplýsingum um mannferðir á þessum stöðum í gær og í fyrradag.

„Þau sem búa á áðurnefndu svæði eða áttu þar leið um á fyrrnefndum tíma eru góðfúslega beðin um að athuga með myndefni hafi þau aðgang að slíku, m.t.t. rannsóknarinnar. Hér er bæði átt við hefðbundnar eftirlitsmyndavélar og eins upptökur úr bifreiðum, en margar bifreiðar hafa nú slíkan búnað innanborðs.“

Í Facebook-hópi íbúa í Hlíðunum hafa verið birt myndskeið af óþekktum aðilum að rispa bíla sem voru kyrrstæðir við Stórholt, Skipholt og Stigahlíð. Umræða hefur skapast um málið þar 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×