Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Birgir Olgeirsson skrifar 7. október 2026 14:03 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir mjög erfitt að takmarka verð- og gjaldskrárhækkanir við 2,5 prósent þegar laun hækka um 3,5 prósent. Hann fagnar þó fyrirheitum um að halda aftur af hækkunum. Vísir/Anton Brink Mjög erfitt er að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan verðbólgumarkmiðs þegar laun hækka meira, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann fagnar þó viðleitni opinberra aðila til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og telur ávinninginn geta skilað sér í lægri vaxtakostnaði.
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 prósent þegar samningsbundnar launahækkanir væru 3,5 prósent. „Nei, það er auðvitað bara mjög erfitt,“ segir Ásgeir. Hann segir engu að síður nauðsynlegt að rjúfa hringrás launa- og verðhækkana. Fyrirtæki hafi að einhverju leyti brugðist við launahækkunum með því að hækka verð og þannig hafi myndast samspil sem þurfi að stöðva. Ríkið, sveitarfélög og fyrirtæki hafa gefið fyrirheit Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur lýst ríkisstjórnina reiðubúna til að takmarka hækkanir almennra krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5 prósent um áramót, í stað 5,2 prósenta samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Fyrirheitið er háð því að kjarasamningar haldi og aðrir aðilar leggi sitt af mörkum. Hún hefur jafnframt boðað sambærileg tilmæli til fyrirtækja í eigu ríkisins. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina reiðubúna til að takmarka hækkanir almennra krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5 prósent um áramót, ef kjarasamningar halda og aðrir leggja sitt af mörkum.Vísir/Anton Brink Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti ályktun 25. september um vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á næsta ári. Þar er einnig lögð áhersla á að kjarasamningar haldi og ríkið taki þátt með sambærilegum hætti. Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs og Kjarnavara, hefur skuldbundið sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna umfram verðbólgumarkmið um áramót. Í tilkynningu félagsins frá 21. september er sérstaklega tekið fram að það geri fyrirtækið þrátt fyrir 3,5 prósenta samningsbundna launahækkun á sama tíma. Verslanir hafa fryst verð á völdum vörum Nokkrar verslanakeðjur hafa einnig tilkynnt tímabundnar aðgerðir. Krónan hefur fryst verð á 647 vörum til áramóta. Hagar lækkuðu verð á hátt í þúsund vörum í Bónus og Hagkaup um tvö prósent og hétu því að það hækkaði ekki aftur fyrir áramót. Nettó lækkaði verð á 1.100 vörum um 2,2 prósent og frysti það til áramóta. Aðgerðir verslananna ná því til tiltekinna vara og afmarkaðs tímabils. Vonar að samningsbundnar hækkanir rúmist innan markmiðsins Verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5 prósent. Ásgeir vísaði í viðtalinu til þess að launahækkanir um áramót yrðu 3,5 prósent ef gildandi kjarasamningar héldu. Spurður hvort þær hækkanir samrýmdust verðbólgumarkmiðinu sagði hann bankann vona að hægt yrði að ná verðbólgu niður þótt samningsbundnar hækkanir kæmu til framkvæmda. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir sveitarfélögin hafa mikið að vinna með lægri verðbólgu og vöxtum. Með því að halda aftur af gjaldskrárhækkunum geti þau stuðlað að því að eigin vaxtakostnaður lækki.Vísir/Anton Brink Hann telur jákvætt að opinberir aðilar taki ábyrgð með því að halda gjaldskrárhækkunum við verðbólgumarkmiðið og segist hafa trú á sameiginlegu átaki. „Við erum ekki svo mörg í þessu landi þannig að við ættum alveg að geta unnið saman.“ Sveitarfélögin hafi mikið að vinna Ásgeir var jafnframt spurður hvort takmarkaðar gjaldskrárhækkanir gætu leitt til aukinnar skuldsetningar sveitarfélaga ef kostnaður þeirra héldi áfram að hækka meira en tekjurnar. Hann bendir á að sveitarfélögin hafi sjálf mikið að vinna með því að verðbólga hjaðni. Það skapi svigrúm til vaxtalækkana og dragi þannig úr vaxtakostnaði þeirra. Hið sama eigi við um ríkissjóð. „Auðvitað er það ekki sérstaklega gott ef stór hluti af tekjum sveitarfélaganna fer í að greiða vexti og verðbætur.“ Ásgeir telur því að sveitarfélögin geti fengið ávinninginn af hóflegum gjaldskrárhækkunum til baka í lægri fjármagnskostnaði. Hann bindur vonir við að verðbólga geti hjaðnað hratt á næsta ári ef allir leggjast á eitt.
Seðlabankinn Verslun Neytendur Sveitarstjórnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu. 7. október 2026 13:04 Sex atvinnulausir um hvert laust starf Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé. 7. október 2026 12:51 Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra. 7. október 2026 11:11 Stýrivextir áfram átta prósent Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mældist 5,9 prósent í september. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun. 7. október 2026 08:30 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Sjá meira
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu. 7. október 2026 13:04
Sex atvinnulausir um hvert laust starf Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé. 7. október 2026 12:51
Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra. 7. október 2026 11:11
Stýrivextir áfram átta prósent Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mældist 5,9 prósent í september. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun. 7. október 2026 08:30