Skoðun

Um­hverfi byggt af um­hyggju

Helga Guðrún Vilmundardóttir, Sigríður Maack og Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifa

Birta við eldhúsborðið. Skjól á leiðinni í skólann. Tré fyrir utan gluggann og bekkur þar sem hægt er að staldra við. Ró til að hvílast og staður til að hitta aðra.

Umhverfið snertir okkur á hverjum degi. Umgjörð utan um lífið allt frá uppvexti, samveru og sköpun minninga. Innan mannvirkja og á milli þeirra lærum við, vinnum, eldumst og finnum okkur stað í samfélaginu. Þess vegna skiptir máli að við mótum þessa ramma lífs okkar og samfélagsins í heild af alúð og nærgætni, fagmennsku en jafnframt með manngæsku og þarfir allra að leiðarljósi.

Við viljum byggja öflugt og öruggt samfélag, og til þess að það megi verða þurfum við að skapa aðstæður fyrir tengsl. Það skiptir máli hvernig íbúðir eru hannaðar út frá höfuðáttum, hvernig mannvirki tengjast göturýminu og hvað fær að gerast á milli húsanna. Græn svæði þar sem börn leika sér, gönguleiðir þar sem nágrannar mætast og sameiginleg rými þar sem fólk getur sest niður ýta undir samskipti í nærumhverfinu, geta haft í för með sér bætta almenna lýðheilsu, tengt okkur við hvert annað og minnkað einmanaleika og einangrun.

Umhyggjan býr líka í því sem er síður sýnilegt. Í loftinu sem við öndum að okkur, birtunni sem nær inn og því hvernig hljóð berst á milli rýma. Þegar vel er að þessu staðið getur umhverfið stutt við heilsu okkar og líðan. Gefið okkur næði, ró og svigrúm til að njóta hversdagsins. Í þessu felast gæði arkitektúrs.

Þegar talað er um  að vanda til verka þegar við hönnum hið manngerða umhverfi þá er ekki verið að tala um íburð. Góð hönnun getur falist í einfaldri lausn sem er vel hugsuð, efni sem endist eða húsi sem fær að standa  áfram í nýju hlutverki. Hún felst í að sjá verðmæti í því sem fyrir er og hugsa lengra en að verklokum.

Ávinningurinn safnast upp með árunum. Góð dagsbirta nýtist á hverjum degi. Tréð vex og veitir skjól. Vönduð rými þjóna nýjum kynslóðum. Það sem við gerum vel í dag getur skilað sér margfalt í framtíðinni — í fegurð, vellíðan, virðingu fyrir umhverfinu og sterkari tengslum.

Þar spilum við öll hlutverk. Þau sem hanna, taka ákvarðanir, byggja og búa í húsunum. Við berum sameiginlega ábyrgð á umhverfi sem aðrir munu erfa og gera að sínu.

Leggjum því natni í umhverfið okkar. Gefum okkur tíma til að hugsa um fólkið sem þar á að lifa, vaxa og dafna bæði nú og í framtíðinni.

Allir græða á því að vandað sé til verka.

Í tilefni af Degi arkitektúrs bjóðum við öll velkomin á Parketið í Grósku næstkomandi fimmtudag kl. 17. Þar fjallar Auður Hreiðarsdóttir frá Esju Arkitektum um SAMFÉLAG og tengsl þess við byggingarlist. 

Gleðilegan dag arkitektúrs!

Höfundar eru í stjórn Arkitektafélags Íslands. 




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×