Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar 5. október 2026 11:33 Undanfarna daga hafa fréttaveitur og allir mínir samfélagsmiðlar verið fullir af fréttum um Cornell 7 málið, eðli málsins samkvæmt. Ég verð samt að viðurkenna að ég er hugsi yfir því að hafa ekki séð einn karlmann hér á Íslandi láta sig málið varða á meðan mjög margar konur í mínu algórithma neti sem og vinahópum hafa bæði skrifað pósta, greinar í fjölmiðla, gert myndbönd, endurpóstað myndböndum og öðru samfélagsmiðlaefni sem kemur víða að. Um helgina birtu tvær ungar þingkonur ríkisstjórnarinnar sterk myndbönd um Cornell 7 málið. Þær hafa báðar látið sig ofbeldismál varða í gegnum tíðina en ég bara get ekki hætt að hugsa um afhverju enginn þingkarl hafi tekið þátt í umræðunni síðustu daga? Eða aðrir karlar sem starfa við það að taka stefnumótandi ákvarðanir í íslensku samfélagi? Hvað gerir það að verkum að þessi mál eru alltaf í fangi okkar kvenna? Við hvað eru karlar hræddir í þessu samhengi? Finnst þeim bandaríska málið um nauðgarana sjö í háskólabandalaginu ekki tengjast sér? Í sömu fréttaviku hafa birst innlendar fréttir um ofbeldi. Þetta eru allt fyrirsagnir frá sl. 7 dögum: "Aldrei jafn margar konur og börn leitað til Kvennaathvarfsins viku frá opnun nýs húsnæðis." "Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum" "Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi." Ég ákvað líka að fletta upp þremur körlum sem pósta á Facebook að meðaltali 2-3var á dag um málefni líðandi stundar og uppskera jafnan hundruðir like-a og tugi athugasemda. Þeir hafa ekki gefið þessum fyrrnefndu ofbeldismálum gaum með neinum hætti. Ég veit að það beita ekki allir menn ofbeldi. En afhverju taka þá ekki fleiri karlar þátt í umræðunni um þetta sára samfélagsmein? Ef þeir geta rætt um Bókun 35 eða bílastæðin endurheimtu 15, hvað gerir það að verkum að þeir forðast að ræða Cornell 7? Höfundur er varaþingmaður Viðreisnar og guðfræðinemi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Ámundadóttir Zoëga Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Undanfarna daga hafa fréttaveitur og allir mínir samfélagsmiðlar verið fullir af fréttum um Cornell 7 málið, eðli málsins samkvæmt. Ég verð samt að viðurkenna að ég er hugsi yfir því að hafa ekki séð einn karlmann hér á Íslandi láta sig málið varða á meðan mjög margar konur í mínu algórithma neti sem og vinahópum hafa bæði skrifað pósta, greinar í fjölmiðla, gert myndbönd, endurpóstað myndböndum og öðru samfélagsmiðlaefni sem kemur víða að. Um helgina birtu tvær ungar þingkonur ríkisstjórnarinnar sterk myndbönd um Cornell 7 málið. Þær hafa báðar látið sig ofbeldismál varða í gegnum tíðina en ég bara get ekki hætt að hugsa um afhverju enginn þingkarl hafi tekið þátt í umræðunni síðustu daga? Eða aðrir karlar sem starfa við það að taka stefnumótandi ákvarðanir í íslensku samfélagi? Hvað gerir það að verkum að þessi mál eru alltaf í fangi okkar kvenna? Við hvað eru karlar hræddir í þessu samhengi? Finnst þeim bandaríska málið um nauðgarana sjö í háskólabandalaginu ekki tengjast sér? Í sömu fréttaviku hafa birst innlendar fréttir um ofbeldi. Þetta eru allt fyrirsagnir frá sl. 7 dögum: "Aldrei jafn margar konur og börn leitað til Kvennaathvarfsins viku frá opnun nýs húsnæðis." "Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum" "Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi." Ég ákvað líka að fletta upp þremur körlum sem pósta á Facebook að meðaltali 2-3var á dag um málefni líðandi stundar og uppskera jafnan hundruðir like-a og tugi athugasemda. Þeir hafa ekki gefið þessum fyrrnefndu ofbeldismálum gaum með neinum hætti. Ég veit að það beita ekki allir menn ofbeldi. En afhverju taka þá ekki fleiri karlar þátt í umræðunni um þetta sára samfélagsmein? Ef þeir geta rætt um Bókun 35 eða bílastæðin endurheimtu 15, hvað gerir það að verkum að þeir forðast að ræða Cornell 7? Höfundur er varaþingmaður Viðreisnar og guðfræðinemi.
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun