Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Aron Guðmundsson skrifar 11. september 2026 13:00 Ummæli Gabriel Jesus, eftir að hann gekk í raðir Barcelona frá Arsenal, kom Mikel Arteta stjóra Arsenal í opna skjöldu. Vísir/Getty Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, er mjög hissa á ummælum sem fyrrverandi leikmaður félagsins, Gabriel Jesus lét falla eftir að félagsskipti hans til Barcelona gengu í gegn á dögunum.
Jesus gekk í raðir Barcelona eftir fjögurra ára veru hjá Arsenal og lét það í ljós í viðtali skömmu eftir komuna til Spánar að hann væri mjög ósáttur við það hvernig komið var fram við hann hjá Arsenal á lokadögum hans hjá félaginu. Eftir undirbúningstímabilið var Jesus látinn æfa einn, merki um að hann væri ekki í plönum Arteta fyrir tímabilið. „Enginn sagði mér neitt,“ sagði Jesus meðal annars í viðtali við SportyTV. „Ég gerði mitt besta til að verða tilbúinn í að spila aftur á hæsta gæðastigi.“ Ummæli Jesus voru borin undir Arteta á blaðamannafundi í morgun. Klippa: Arteta hissa á Jesus „Ég er mjög hissa á ummælum hans, í fullri hreinskilni sagt,“ sagði Arteta. „Sér í lagi vegna þess að ég átti einn á einn samtal við hann í búningsklefanum. Þar töluðum við um þakklæti í garð hvors annars. Ég veit ekki. Þetta er í lagi. Ég get skilið að þegar þú þarft að færa einhverjum vondar fréttir eða fréttir sem hann á ekki von á þá gæti viðkomandi brugðist svona við.“ Svar Arteta í fullri lengd má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni. Arsenal heimsækir Sunderland í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld.
Enski boltinn Arsenal FC FC Barcelona Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira