Blása á gagnrýni og opna dagatalið Árni Sæberg skrifar 9. september 2026 14:18 Fulltrúar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hafa átt fjölda funda við fulltrúa aðila vinnumarkaðins. Vilhjálmur Birgisson segist ekkert kannast við slíka fundi. Vísir Forsætisráðuneytið blæs á gagnrýni formanns Starfsgreinasambandsins, sem segist ekkert kannast við þríhliða samtal ríkis og aðila vinnumarkaðar um brostnar forsendur kjarasamninga. Fundir stýrihóps séu þegar orðnir þrettán talsins, forsætisráðherra hafi setið nokkra fundi með ASÍ og SA og málið hafi verið það eina á dagskrá á tveimur fundum þjóðhagsráðs.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að hann kannaðist ekkert við að hafa átt í virku samtali við stjórnvöld um forsendubrest kjarasamninga. Forsætisráðherra minntist á samtalið þríhliða á blaðamannafundi vegna þingmálaskrár vetrarins í gær. Vilhjálmur sagðist hins vegar ekki hafa átt í neinu virku samtali við forsætisráðherra, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Starfsgreinasambandið væri stærsta landssamband innan Alþýðusambandsins með 44 þúsund félaga. „Síðan hefur hún ítrekað í fjölmiðlum sagt að hún sé í virku samtali við aðila vinnumarkaðarins og það hefur verið talað um þetta alveg frá því í janúar.“ Tólf fundir stýrihóps og annar boðaður Vísir bar þetta misræmi í frásögnum Kristrúnar og Vilhjálms undir forsætisráðuneytið, sem svaraði með yfirliti yfir fundi sem haldnir hafa verið síðan boðað var til þríhliða samtals í maí síðastliðnum. „Samkvæmt því verklagi sem samþykkt var af aðilum þessa þríhliða samtals var skipaður stýrihópur sem heldur utan um vinnuna. Stýrihópurinn setti á fót þrjá undirhópa sem hafa nú lokið störfum og skilað niðurstöðum sínum, með aðkomu Sambands íslenskra sveitarfélaga og opinberu heildarsamtakanna (BHM, BSRB, KÍ). Forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hafa einnig fundað með fulltrúum ASÍ og SA eftir því sem samtalinu hefur undið fram,“ segir í svari ráðuneytisins. Fundir í stýrihópi þríhliða samtals ríkisins, ASÍ og SA hafi verið þrettán talsins. Stýrihópurinn hafi fundað á eftirtöldum dagsetningum: 18. maí, 20. maí, 21. maí, 26. maí, 27. maí, 28. maí, 11. júní, 24. júní, 1. júlí, 17. ágúst, 19. ágúst, 31. ágúst og í dag, 9. september. Í stýrihópnum sitji eftirfarandi: Benedikt Árnason, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, formaður Sigurður Páll Ólafsson, skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdstjóri og forstöðumaður efnahagssviðs hjá Samtökum atvinnulífsins. Á nokkra fundi stýrihópsins hafi jafnframt komið fleiri aðilar þeirra samtaka og ráðuneyta sem fulltrúa eiga í stýrihópnum, auk þess sem fundað hafi verið með fulltrúum félags- og húsnæðismálaráðuneytis og formanni kjaratölfræðinefndar. Aukafundur í þjóðhagsráði Því til viðbótar hafi verið haldnir tveir fundir í þjóðhagsráði á þessu tímabili. Á fundum þjóðhagsráðs 1. júní og 3. september hafi þríhliða samtal ríkisins, ASÍ og SA verið eina málið á dagskrá ásamt ýmsum kynningum og umræðum í tengslum við það. Segja megi að fundurinn 1. júní hafi verið aukafundur vegna þríhliða samtalsins en samkvæmt samkomulagi um þjóðhagsráð fundi það að lágmarki fjórum sinnum á ári. Fundir hafi verið haldnir í mars og apríl síðastliðnum og næsti fundur sé boðaður í nóvember næstkomandi. Ráðið muni því funda minnst fimm sinnum á þessu ári. Auk funda í þjóðhagsráði hafi forsætisráðherra setið tvo fundi í sumar með fulltrúum SA og ASÍ auk fjármála- og efnahagsráðherra, 10. júní og 24. ágúst, og þá hafi forsætisráðherra setið reglulegan fund með forseta ASÍ þann 5. júní. Samkvæmt beiðni hafi forsætisráðherra einnig átt fund um gang mála með formönnum landssambanda og stærstu aðildarfélaga ASÍ þann 30. júní. Uppfært: Upphaflega sagði að fundir stýrihópsins væru tólf talsins og sá þrettándi hefði verið boðaður. Þrettándi fundirinn var haldinn í dag.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Stéttarfélög Atvinnurekendur Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira