Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Kjartan Kjartansson skrifar 8. september 2026 13:16 Ed Miliband, utanríkisráðherra Bretlands. Hann kynnti refsðiagerðirnar gegn landtökubyggðum gyðinga í dag. Bandaríski sendiherrann sakaði hann og bresku ríkisstjórnina um gyðingahatur þrátt fyrir að Miliband sé sjálfur gyðingur. Vísir/EPA Bretar, Frakkar og Kanadamenn ætla beita ólöglegar landtökubyggðir gyðinga á palestínsku landi refsiaðgerðum. Bandarísk stjórnvöld hafa hótað að refsa Bretum fyrir aðgerðirnar.
Ed Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, greindi frá refsiaðgerðunum í breska þinginu í dag. Lýsti hann árásum ísraelskra landtökumanna á Palestínumenn og eignarnám á landi þeirra sem þjóðernishreinsunum. „Breska ríkisstjórnin er á einu máli um að það eigi sér stað þjóðernishreinsanir á Palestínumönnum á svæðum á Vesturbakkanum sem landtökuhryðjuverkamenn fremja,“ sagði Miliband. Aðgerðirnar fela það í sér að bannað verður að kaupa vörur og suma þjónustu frá landtökubyggðunum. Miliband sagði að Bretar ætluðu þannig að refsa fyrirtækjum og einstaklingum sem tækjum þátt í framkvæmdum, innviðauppbyggingu, fjármögnun eða fasteignasölu fyrir landtökubyggðirnar. „Við þá sem fjármagna eða liðka fyrir ólöglegum landtökubyggðum leyfið mér að segja þetta, þið munið kenna á fullum krafti þvingunaraðgerða Bretlands,“ sagði breski utanríkisráðherrann. Jean-Noël Barrot, franskur starfsbróðir Miliband, staðfesti þátttöku Frakka í aðgerðunum. „Frakkland getur ekki með viðskiptum sínum stutt aðstæður sem ógna öryggi bæði Ísraela og Palestínumanna,“ skrifaði hann á samfélagsmiðli. Bandaríkjamenn og Ísraelar boða hefndaraðgerðir Aðgerðir ríkjanna þriggja gegn landtökubyggðunum falla í grýttan jarðveg vestan Atlantshafsins. Mike Huckabee, sendiherra Bandaríkjastjórnar í Bretlandi, sakaði ríkisstjórn breska Verkamannaflokksins um „gyðingahatur“ þrátt fyrir að Miliband sé sjálfur gyðingur. Boðaði hann viðskiptaþvinganir gegn Bretlandi, jafnvel á vegum einstakra bandarískra ríkja eins og Flórída, að sögn evrópska blaðsins Politico. Ísraelskir ráðamenn, sem eiga í sífellt stirðara sambandi við hefðbundna bandamenn sína í Evrópu vegna aðfara þeirra gegn Palestínumönnum og Líbönum, eru einnig argir. Isaac Herzog, forseti, sagði það vanhugsað að beita landtökubyggðirnar aðgerðum og að ákvörðunin yrði „röngu megin við söguna“. Harðlínumaðurinn Gideon Sa'ar, utanríkisráðherra Ísraels, sagði Ísraelsstjórn hefna sín ef Bretar gripu til aðgerða gegn landtökubyggðunum. Setja aukinn kraft í að taka land Palestínumanna Flest ríki heims telja landtökubyggðir gyðinga á hernumndum svæðum Palestínumanna ólöglegar. Þrátt fyrir það hafa ísraelsk stjórnvöld greitt götu landtökumanna í vaxandi mæli að undanförnu. Þannig hafa árásir landtökumanna á Palestínumenn orðið tíðari á undanförnum vikum og mánuðum. Markmið þeirra er að hrekja Palestínumenn af landsvæðum sínum og brjóta það undir nýja byggð fyrir gyðinga. Landtökumenn hafa notað jarðýtur til þess að jafna hús Palestínumanna við jörðu, eyðileggja vegi og innviði og hrekja þá á flótta.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Bretland Kanada Evrópusambandið Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sjá meira