Viðskipti erlent

Greiða 4,3 milljarða vegna sölu per­sónu­upp­lýsinga

Samúel Karl Ólason skrifar
Grindr er stærsta stefnumótaforrit heims fyrir LGTBQ-fólk.
Grindr er stærsta stefnumótaforrit heims fyrir LGTBQ-fólk. Getty/Thomas Fuller, Sopa Images

Forsvarsmenn stefnumótaforritsins Grindr hafa samþykkt að greiða 26 milljónir punda til að binda enda á lögsókn gegn fyrirtækinu vegna ásakana um að persónuupplýsingum breskra notenda hafi verið deilt með auglýsingafyrirtækjum. Þar á meðal eru upplýsingar um það hvort viðkomandi notendur hafi verið smitaðir af HIV-veirunni og kynhneigð þeirra.

Grindr er stærsta stefnumótaforrit heimsins fyrir LGTBQ-fólk.

Notendur Grindr hafa þann valkost að deila upplýsingum um HIV-smit og hvenær þeir fóru síðast í skoðun.

26 milljónir punda samsvara um 4,3 milljörðum króna. Til stendur að greiða þetta í tveimur greiðslum til um það bil tólf þúsund aðila sem komu að málsókninni. Það samsvarar um 360 þúsund krónum á hvern.

Málið var höfðað í Bretlandi árið 2024 en ásakanirnar eiga rætur að rekja til tímabilsins fyrir 2020 en þá var samfélagsmiðillinn í eigu kínverska fyrirtækisins Kunlun. Upp komst um gagnadeilinguna árið 2018. Þá höfðu eigendur Grindr selt upplýsingarnar til fyrirtækjanna Apptimize og Localytics.

Sjá einnig: Stefnumótaforrit deildi upplýsingum um HIV-smit

Norska persónuverndarstofnunin Datatilsynet sektaði eigendur Grinder um tæpan milljarð árið 2021.

Samkomulagið felur í sér að fyrirtækið játar ekki að hafa gert neitt rangt.

Í tilkynningu sem BBC vísar til segir að þótt forsvarsmenn fyrirtækisins hafni ásökununum, geri þeir sér grein fyrir þeim slæmu áhrifum sem málið hefur haft og hvað það hefur komið niður á því trausti sem notendur bera til samfélagsmiðilsins.

Árið 2020 gerðu yfirvöld í Bandaríkjunum kínverskum eigendum Grindr að selja samfélagsmiðilinn vegna áhyggja af meðhöndlun persónuupplýsinga notenda.

Þá keyptu fjárfestar í félagi sem heitir San Vicente Acquisition LLC samfélagsmiðilinn fyrir 620 milljónir dala (um 75 milljarðar króna í dag). Ekki var gefið upp hverjir voru á bak við félagið en Reuters sagði svo seinna meir frá því að fjárfestar í félaginu hefðu tengingar við Kunlun.

Tekjur Grindr voru 16,7 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi og hagnaður um 2,2 milljarðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×