Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 4. september 2026 13:30 Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar segir að stofnunin muni taka ákörðun eftir helgi um hvort ábendingar og kvartanir eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna verði skoðaðar meira. Vísir Næstum tuttugu ábendingar og kvartanir hafa borist til Persónuverndar vegna símhringinga og skilaboða í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Forstjóri Persónuverndar segir allar nema eina snúa að Áfram Íslandi. Á næstu dögum verði ákveðið hvort málin gefi tilefni til rannsóknar og mögulegra viðurlaga.
Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar segir erindin hafa borist bæði fyrir og eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um liðna helgi. Tveimur dögum fyrir atkvæðagreiðsluna hafi til að mynda komið fram í frétt á vef stofnunarinnar að með notkun persónuupplýsinga í markaðssetningu, þar á meðal á samfélagsmiðlum, þyrftu hagsmunaaðilar að tryggja að vinnslan samrýmdist persónuverndarlögum. Frétt á vef Persónuverndar tveimur dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Vísir „Þau snúa mestmegnis að því að fólk hafi verið að fá óumbeðnar símhringingar, SMS og tölvupósta. En síðan er fólk einnig að velta fyrir sér hugsanlegri miðlun á símanúmerum, þ.e. hvaðan úthringiaðilinn hafi fengið símanúmer sem er notað,“ segir Helga. Aðspurð hvernig slíkt geti verið brot á persónuverndarlögum svarar Helga: „Það má ekki nota persónuupplýsingar nema að hafa heimild til þess. Ef hringt hefur verið út samkvæmt úthringilistum þurfum við mögulega að skoða hvaðan listarnir eru komnir.“ Erindum fjölgað Helga segir erindunum hafa fjölgað undanfarna daga. Alls hafi Persónuvernd nú borist nítján erindi vegna málsins. „Það að við séum búin að fá nú þegar fimm kvartanir og í rauninni fjórtán ábendingar í það heila, ég myndi segja að það væri nokkuð mikið. Það að setja sig í stellingar og senda póst á eftirlitsaðila er náttúrulega eitthvað sem fólk gerir ekki á hverjum degi, “ segir Helga. Allar nema ein vegna Áfram Ísland Helga segir átján af nítján erindum sem Persónuvernd hefur fengið snúa að Áfram Íslandi, sem barðist fyrir því að kjósendur segðu nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Eitt erindi snýr að Já til að sjá. „Þær eru þannig að átján ábendingarnar af þessum nítján sem við höfum fengið snúast að nei-hliðinni,“ segir Helga. Ákvörðun um næstu skref í málinu verði tekin fljótlega. „Persónuvernd mun nú leggja mat á erindin og ákveða hvort tilefni sé til að hefja rannsókn. Ákvörðunin um framhaldið verður væntanlega tekin í upphafi næstu viku,“ segir Helga. Aðspurð hvaða viðurlög geti komið til greina verði niðurstaðan sú að brotið hafi verið gegn persónuverndarlöggjöfinni segir Helga þau geta verið af ýmsum toga. „Viðurlög samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni geta verið margvísleg.“
Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Persónuvernd Alþingi Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira