Sport

Dag­skráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum

Sindri Sverrisson skrifar
Virgil van Dijk og félagar eru taplausir en aðeins með tvö stig.
Virgil van Dijk og félagar eru taplausir en aðeins með tvö stig. Getty/Robbie Jay Barratt

Liverpool freistar þess að vinna sinn fyrsta sigur á leiktíðinni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Spennan eykst fyrir Formúlu 1 kappakstri helgarinnar og spilað er í þýsku 1. deildinni í fótbolta.

Það er sannkölluð fótboltaveisla á sportrásum Sýnar um helgina, með leikjum í ensku úrvalsdeildinni og Bestu deildinni, en fjörið hefst í kvöld.

Nýliðar Ipswich taka á móti Liverpool klukkan 19 en þeir hafa þegar náð í þrjú stig, með sigri á Sunderland í fyrsta leik, á meðan að Liverpool er með tvö stig eftir jafnteflin við Nottingham Forest og Newcastle.

Leikur Ipswich og Liverpool er á Sýn Sport og hefst útsending klukkan 18:40.

Í þýska fótboltanum tekur Stuttgart á móti Köln klukkan 18:30 og sá leikur er á Sýn Sport Viaplay.

Þar verður einnig hitað upp fyrir Formúlu 1 keppnina í Monza með tveimur æfingum, klukkan 10:25 og klukkan 13:55.

Þá heldur keppni áfram á Omega European Masters mótinu í Sviss, á Evrópumótaröðinni í golfi, þar sem bein útsending hefst klukkan 11:30 á Sýn Sport 4.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×