ESA sögð tilbúin með mál gegn Íslandi vegna bókunar 35 Kjartan Kjartansson skrifar 2. september 2026 11:29 Bókun 35 verður á dagskrá Alþingis í haust í skugga mögulegs EFTA-dómsmáls gegn Íslandi. Vísir/Vilhelm Eftirlitsstofnun EFTA er sögð undirbúa samningabrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35. Málið er sagt hafa verið sett á bið vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar og að íslensk stjórnvöld hafi vitað af því.
Fréttaritari Ríkisútvarpsins í Brussel segir eftirlitsstofnunina (ESA) nánast tilbúna með mál gegn Íslandi fyrir brot á EES-samningnum. Ástæðan sé sú að Ísland hafi ekki enn innleitt bókun 35 sem felur í sér að ákvæði sem voru tekin inn í íslensk lög í gegnum EES-samninginn gangi framar öðrum íslenskum lögum ef þau stangast á nema Alþingi hafi ákveði annað. Íslensk stjórnvöld eru sögð hafa vitað af því að málsóknin vofði yfir. Málið hafi verið í biðstöðu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður sem fór fram um helgina. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hefur sagt að bókun 35 verði sett í forgang á nýju þingi til þess að festa EES-samninginn í sessi eftir að meirihluti kjósenda hafnaði aðildarviðræðum á laugardag. ESA sendi íslenskum stjórnvöld formlegt álit árið 2017 um að þau hefðu ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart EES-samningnum. Það bréf var sent fimm árum eftir að ESA óskaði eftir upplýsingum frá íslenskum stjórnvöldum um hvernig þau ætluðu að standa við skuldbindingar sínar. Íslensk stjórnvöld svöruðu því erindi ekki. Íslensk stjórnvöld töldu sig hafa uppfyllt skuldbindingar sínar með ákvæði í lögum um evrópska efnahagssvæðið árið 1993. Dómur Hæstaréttar um áratug síðar setti það í uppnám þar sem hann taldi ákvæðið ekki þýða að lög sem byggðu á EES-reglum gengu framar öðrum lagagreinum. Hluti stjórnarandstöðunnar hefur sett sig upp á móti því að bókun 35 verði samþykkt. Málið hefur þrisvar verið lagt fram á Alþingi frá 2023 en aldrei verið samþykkt. Þingmenn Miðflokksins stóðu meðal annars fyrir málþófi til að koma í veg fyrir framgang þess í fyrra.
Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Bókun 35 EES-samningurinn EFTA Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Sjá meira