„Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir skrifar 2. september 2026 07:32 Þetta spurði 13 ára dóttir mín mig þegar ég sagði henni að ég hefði kosið já í nýafstöðnum kosningum. Þegar ég spurði hvers vegna hún héldi það svaraði hún: „Krakkarnir í spjallhópnum sögðu að ef svarið yrði já þá kæmi Trump og myndi sprengja Ísland.“ „Trúirðu því?“ „Nei. En það segja það samt allir.“ Í spjallhópnum eru um þrjátíu krakkar á hennar aldri. Fyrstu viðbrögð mín voru að velta fyrir mér hvað foreldrar væru að segja við börnin sín. Fljótt áttaði ég mig þó á að líklegra væri að samfélagsmiðlar væru uppspretta þessara hugmynda. Ég hef oft haft áhyggjur af því sem dóttir mín gæti rekist á þar; efni sem skaðar sjálfsmynd, ýtir undir skaðlega hegðun eða setur hana í hættu. Pólitískur hræðsluáróður hafði hins vegar ekki verið á listanum. Það breyttist eftir þessar kosningar. Upplýst og opin umræða er ein af grunnforsendum lýðræðis. Fjölmiðlar eiga að upplýsa almenning, veita stjórnvöldum aðhald og stuðla að gagnsæi. Tilkoma samfélagsmiðla hefur hins vegar gjörbreytt landslaginu. Fyrir marga unga kjósendur og verðandi kjósendur eru samfélagsmiðlar orðin helsta upplýsingaveitan. Þar eru það þó ekki endilega bestu rökin sem fá mesta dreifingu heldur skilaboð sem vekja sterkustu tilfinningarnar, hræðslu, reiði eða hneykslun. Afleiðingin er sú að rangfærslur, hálfsannleikur og upplýsingaóreiða geta átt auðveldara uppdráttar en staðreyndir. Í aðdraganda kosninganna bárust ungum notendum skilaboð sem tengdust beint kosningabaráttunni. Ekki var einungis fullyrt að Ísland myndi glata fullveldi sínu og að aðildarviðræður jafngiltu sjálfkrafa aðild, heldur að ungt fólk yrði sent í „evrópskan her“ og jafnvel að landið yrði lagt í rúst ef kosið yrði á „rangan“ hátt. Margar þessara fullyrðinga voru settar fram af mikilli vissu þrátt fyrir litla eða enga stoð í staðreyndum. Niðurstaða kosninganna var einsog kunnugt er nei. Hvort slíkur áróður hafði úrslitaáhrif verður seint fullyrt. En það er ástæða til að staldra við og velta fyrir sér áhrifum hans á yngri kynslóðir. Þegar hræðsla og rangfærslur fá meira vægi en staðreyndir verður lýðræðisleg umræða fyrir skaða, óháð því hvor afstaðan verður ofan á. Hræðsluáróður getur skilað skammtímaárangri en kostnaðurinn birtist síðar. Hann ýtir undir sundrung, grefur undan trausti til stofnana og fjölmiðla og beinir athyglinni frá raunverulegum úrlausnarefnum yfir í ímyndaðar ógnir. Við þurfum að hugsa um framtíðarkjósendur. Hvernig viljum við standa vörð um upplýsta umræðu, gagnsæi og heilbrigða skoðanamyndun? Ef 13 ára barn getur setið uppi með þá hugmynd að pólitísk afstaða foreldra þess leiði til þess að Ísland verði sprengt, þá ætti það að vera áhyggjuefni fyrir okkur öll, óháð því hvernig við kusum. Við viljum ekki að pólitískar ákvarðanir byggist á ótta. Við viljum að þær byggist á upplýsingum, gagnrýninni hugsun og málefnalegri umræðu. Á þessu heimili var málið rætt og dóttir mín fullvissuð um að ég vildi alls ekki láta sprengja Ísland. Ég hafði einfaldlega aðra sýn á hvað væri landinu fyrir bestu og vildi sterkari gjaldmiðil og meiri stöðugleika. En þau rök féllu fyrir nokkuð daufum 13 ára eyrum, þau vöktu ekki hræðslu, reiði eða hneykslun. Höfundur er móðir og hagfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar