Sigríður Þorvaldsdóttir látin Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 1. september 2026 17:52 Sigríður var 85 ára að aldri. Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona lést í faðmi fjölskyldunnar rétt fyrir miðnætti í gær. Hún var 85 ára að aldri.
Dætur Sigríðar, greina frá þessu í færslu á Facebook. „Mamma var, eins og alþjóð veit, eitt stórt bros og skilur eftir sig stórt skarð í lífi þeirra sem þótti vænt um hana en jafnframt ótal skemmtilegar minningar, endalausa ást og þakklæti,“ skrifa dæturnar. Sigríður fæddist í Reykjavík þann 12. apríl 1941. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Steingrímsson tónlistarmaður og Ingibjörg Halldórsdóttir hárgreiðslumeistari. Hún lærði leiklist við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og útskrifaðist þaðan árið 1958. Fyrsta hlutverk Sigríðar var í verkinu Kysstu mig Kata. Seinna meir stundaði hún framhaldsnám í leiklist í Hollywood og lék í fjölda hlutverka á sviði og í kvikmyndum. Hún starfaði hjá Estelle Harman Actors Workshop og flutti síðan til Texas-fylkis þar sem hún starfaði hjá Dallas Theater Center. Tveimur árum eftir flutningana kom Sigríður aftur til Íslands og var fastráðin hjá Þjóðleikhúsinu. Hún varð leikstjóri þar og sömuleiðis í sjónvarpinu og hjá Íslensku óperunni. Sigríður kom sjö sinnum fram í Ármótaskaupi Ríkisútvarpsins árin 1967 til 1982 og leikstýrði skaupinu árið 1979. Að því loknu flutti hún í eitt ár með fjölskylduna til Grikklands og lærði þar grísku. Hún var einnig kjörin varaþingmaður Kvennalistans og sat á Alþingi um skeið. Þá varð hún formaður Félags íslenskra leikara árið 1988. Sigríður giftist Lárusi Sveinssyni, trompetleikara og söngstjóra, árið 1967. Saman eignuðust þau þrjár dætur, Ingibjörgu, Þórunni og Dísellu.
Andlát Menning Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira